
Brace Your Heart + Masterclass
Háskólabíó
1. október, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri: Amanda Kernell
Sænsk-samíski leikstjórinn Amanda Kernell, sem RIFF 2026 heiðrar sem upprennandi meistara, kemur með nýjustu kvikmynd sína, Brace Your Heart (Garrat du váimmu), á hátíðina eftir glæsilegan árangur á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Myndin hlaut sérstök dómnefndarverðlaun í Platform-keppninni á Toronto International Film Festival, þar sem hún var heimsfrumsýnd, og Kernell hlaut Silfurskelina fyrir bestu leikstjórn á San Sebastián International Film Festival.
Brace Your Heart gerist í afskekktu samísku fjallaþorpi og segir frá tvítugu Ejvu, sem erfir hreindýrahjörð föður síns eftir lát hans og berst fyrir sjálfstæði sínu og rétti til að móta eigin framtíð. Myndin er samframleiðsla Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur, Íslands og Búlgaríu. Að lokinni sýningu gefst gestum RIFF kostur á að hitta Kernell í meistaraspjalli og kynnast nánar vinnubrögðum hennar og þeim þemum sem einkenna verk hennar.
Music and Magic: Reykjavík Queer Choir and Fado Bicha
Háskólabíó
1. október, kl 20:30 (8:30pm)
Fado Bicha er dúett frá Lissabon sem fer eigin leiðir við að endurskilgreina eina þekktustu og ástsælustu tónlistarhefð Portúgals, fado-söngva. Söngvarinn Lila Fadista og gítarleikarinn João Caçador ljá fado nýja rödd með því að tvinna saman hefð og samtíma og fjalla um sjálfsmynd, kyn og samfélagsbreytingar. Dúettinn stígur á svið ásamt Hinseginkór Reykjavíkur á einstökum viðburði þar sem íslensk kórhefð mætir portúgalskri þjóðlagatónlist.


Paper Tiger
Háskólabíó
1. október, kl 19:35 (7:35pm)
Leikstjóri: James Gray
Í þessu áhrifamikla og ákafa drama James Gray flækjast tveir bræður í ráðabrugg sem reynist of gott til að vera satt. Þegar þeir reyna að fóta sig í hættulegum heimi rússnesku mafíunnar fara fjölskylduböndin að trosna, með afdrifaríkum afleiðingum. Með Adam Driver og Scarlett Johansson í aðalhlutverkum.
Það sem hverfur + Samtal til áhrifa
Háskólabíó
1. október, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjórar: Pepe Andreu, Rafa Molés
La Pietà á rætur í landslagi sem tekur djúpstæðum breytingum. Við rætur Vatnajökuls verður saga Flosa Björnssonar og fjölskyldu hans óaðskiljanleg frá jöklinum sjálfum — stað sem geymir minningar, hefur veitt fólki lífsviðurværi og er hluti af sjálfsmynd þess, en breytist nú hratt. Í þessu Samtali til áhrifa verður myndin útgangspunktur umræðu um hvað það þýðir að búa við umhverfisbreytingar sem gerast smám saman en umbreyta bæði landslagi og samfélögunum sem tengjast því. Horft verður á jökla sem meira en vísbendingu um loftslagsvána: þeir geyma líka persónulegar sögur, menningarlegt minni og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Kvikmyndagerðarmennirnir Pepe Andreu og Rafa Molés ræða við Helgu Ögmundardóttur, umhverfismannfræðing og dósent við Háskóla Íslands, sem rannsakar tengsl fólks við náttúruna og umhverfisbreytingar, og Guðfinnu Aðalgeirsdóttur, prófessor í jöklafræði við Háskóla Íslands og einn helsta sérfræðing landsins á sviði jöklarannsókna. Saman ræða þau hvað glatast þegar kunnuglegt landslag tekur að hverfa, hvernig umhverfisbreytingar birtast bæði í vísindum og reynslu fólksins sem býr við þær, og hvernig kvikmyndir geta gert hægfara og oft óhlutbundin ferli á borð við loftslagsbreytingar áþreifanleg og persónuleg. Elís Guðnason stýrir umræðunum.


Pallborð: Kvikmyndin sem vopn
Norræna húsið
1. október, kl. 15:15 (3:15pm)
Í fjölmiðlaumhverfi sem mótast æ meira af rangfærslum, áróðri og markvissri nýtingu myndefnis, hefur sú spurning hvernig kvikmyndir taka þátt í mótun opinberrar umræðu fengið nýtt og knýjandi mikilvægi.
Kvikmyndir geta styrkt ríkjandi hugmyndir, einfaldað flókinn veruleika eða orðið hluti af pólitískum boðskap — en þær geta líka dregið í efa þær sögur sem samfélög segja af sjálfum sér, afhjúpað þversagnir og skapað rými fyrir sjónarhorn sem hafna einföldum niðurstöðum.
Í þessu pallborði verða dregin saman sjónarhorn úr framleiðslu, sjónvarpsútsendingum, fjármögnun og alþjóðlegri dreifingu, þar sem rýnt verður í hvað gerist þegar kvikmyndagerðarfólk tekst á við efni sem er pólitískt eða samfélagslega hlaðið. Hvernig eru slíkar myndir þróaðar og þeim sýndur stuðningur? Hvernig sigla framleiðendur, sjónvarpsstöðvar og söluaðilar í gegnum verkefni sem ögra áhorfendum eða ríkjandi frásögnum? Hvaða þrýstingur fylgir fjármögnun, kaupum, markaðstorgum og væntingum um alþjóðlega dreifingu — og hvernig getur kvikmyndagerðarfólk viðhaldið flækjustigi og dýpt í stað þess að breyta kvikmyndinni í enn eitt form boðskapar?
Með því að færa okkur frá hinu víðara fjölmiðlaumhverfi og inn í hagnýt strúktúr kvikmyndagerðar, spyr þessi umræða hvaða hlutverki kvikmyndalist getur enn gegnt við að draga í efa þær myndir, frásagnir og forsendur sem við notum til að skilja heiminn.
Þátttakendurnir eru Baltasar Kormákur, Susan Wendt, Rémi Burah, Erik Hemmendorff, Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Elfa Gylfadóttir. Þorfinnur Ómarsson stýrir.
Two Brothers, My Sister + Intro
Háskólabíó
1. október, kl 21:50 (9:50pm)
Leikstjóri: Teresa Villaverde
Stórleikkonan Maria de Medeiros heldur kynningu fyrir sýninguna.
Lissabon um miðjan tíunda áratuginn. María, João og Mário búa saman, án þess að velta framtíðinni – eða jafnvel líðandi stundu – mikið fyrir sér. Þau elska hvert annað, en einn daginn skilja leiðir þeirra. Þegar María þarf á hjálp þeirra að halda koma systkinin þrjú aftur saman – en því miður aðeins of seint.
Á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 1994 hlaut Maria de Medeiros verðlaunin sem besta leikkonan fyrir myndina.


Sámi Blood + Q&A
Háskólabíó
1. október, kl 19:40 (7:40pm)
Leikstjóri: Amanda Kernell
Í kjölfar meistaraspjallsins sýnum við Sama blóð eftir Amanda Kernell og hún tekur þátt í Spurt & svarað í lok myndarinnar.
Elle Marja, 14 ára, er samísk stúlka sem sinnir hreindýrahirðingu. Í heimavistarskólanum verður hún fyrir kynþáttafordómum og þarf að gangast undir kynþáttalíffræðilegar rannsóknir, eins og tíðkuðust á fjórða áratugnum. Hún lætur sig dreyma um annað líf, en til að öðlast það þarf hún að afneita sjálfri sér, verða einhver önnur og slíta öll tengsl við fjölskyldu sína og menningu.
The Dashed Lines + Q&A
Háskólabíó
1. október, kl 17:30 (5:30pm)
Leikstjóri: Anxos Fazáns
Leikstjóri myndarinnar tekur þátt í Spurt og svarað.
Bea, fimmtug kona sem er að ganga í gegnum skilnað, og Denís, 28 ára transmaður sem stendur frammi fyrir óvissri framtíð í atvinnulífinu, hittast við óvæntar aðstæður sem munu breyta lífi þeirra beggja til frambúðar.


Panel: From Festival to Audience
Háskólabíó
1. október, kl 13:15 (1:15pm)
Flestir þeirra sem starfa innan kvikmyndabransans þekkja söguna þegar kemur að því að skila af sér kvikmynd eða stuttmynd. Færri skilja hvað skal gera næst: Ákvarðanir, samningaviðræður og óvissuþættir sem skilgreina vegferðina frá kvikmyndahátíðum til dreifingar og sölu. Þessi umræða safnar saman íslenskum kvikmyndagerðarmönnum og því fagfólki sem tekur við eftir að eftirvinnslu líkur. Sérstök tilfelli verða rannsökuð þar sem raunverulegt ferðalag nýlegra kvikmyndaverka er í brennideplinum: Hvað gerðist við fyrstu kynni? Hvernig var hátíðaráætlun ákveðin? Hvað mótaði ákvarðanir um sölur? Hvenær fóru hlutirnir á annan veg heldur en ætlað var? Frekar en að rýna í hlutina úr fjarlægð munu þátttakendur deila reynslu sinni og varpa ljósi á raunverulegt samstarf milli kvikmyndagerðafólks og dreifingaraðila. Takmarkið með umræðunum er að afhjúpa mikilvægt stig í lífi hverrar myndar og að sýna upprennandi kvikmyndagerðarmönnum og framleiðendum hvernig raunverulegt samstarf lítur út.
Þátttakendurnir eru Amanda Kernell, Susan Wendt, Olivier Barbier, og Tinna Proppé. Frederic Boyer stýrir.
Them, Fado Bicha
Háskólabíó
1. október, kl 5:15 (5:15pm)
Leikstjóri: Justine Lemahieu
Í Portúgal gefa lög Lilu og João, listamannanna tveggja úr hljómsveitinni Fado Bicha, sögum og baráttu LGBTQI+ fólks fyllingu og rödd. Í nánd búningsherbergjanna mætast orð og augnaráð þar sem spurningar vakna um samband okkar við útlit, kynjavenjur, tungumál og kynhneigð.


Dissociated Me + Intro
Háskólabíó
30. september, kl. 21:40 (9:40pm)
Leikstjóri myndarinnar heldur kynningu fyrir myndina.
Hvött áfram af klipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur reynir kona ein að gera kvikmynd um stormasama fortíð sína þar sem ýmis áföll í æsku koma við sögu. Án handrits velur hún leikara og leitar að tökustöðum, en verður svo fyrir bíl í miðju framleiðsluferlinu. Þegar áformin um kvikmyndina hrynja sleppir hún takinu á sögunni sem hún taldi sig verða að segja og nær loks aftur tökum á eigin lífi.
Light Pillar
Háskólabíó
1. október, kl 22:15 (10:15pm)
Leikstjóri: Xu Zao
Framtíðin. Vetur. Geimferðir eru ekki lengur draumur. Einmana ræstingamaður sér um lóðina við niðurnídda og gjaldþrota kvikmyndaverksmiðju. Dag einn hefst fyrir þó rómantískt ferðalag þegar hann kynnist leikkonu í undurfögrum sýndarheimi, þar sem mörkin milli raunveruleika og ímyndunar verða sífellt óljósari.


International Shorts I
Háskólabíó
1. október, kl 22:15 (10:15pm)
Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.
No Ghosts on Good Street
Háskólabíó
1. október, kl. 19:15 (7:15pm)
Leikstjóri: Emi Buchwald
Fjögur systkyni sem nálgast fullorðinsaldurinn reyna að standa á eigin fótum án þess að glata tenglsum við hvert annað. Vandamálin eru hinsvegar margvísleg, allt frá ásókn dularfullrar næturveru til eiturlyfjanotkunar. Öll þrá þau væntumþykju og viðurkenningu, en er höfnun óumflýjanleg þegar eigin vandamál virðast óyfirstíganleg?





