Það er Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í senn heiður og sönn ánægja að tilkynna góða gesti á Bransadögum RIFF 2026, sem allir eru í hópi áhrifafólks í heimi kvikmyndanna í dag.
Meðal þeirra sem mæta og taka þátt að þessu sinni eru Erik Hemmendorff hjá Plattform Produktion en hann hefur meðal annars framleitt velflestar kvikmyndir verðlaunaleikstjórans Ruben Östlund. Einnig er væntanleg Susan Wendt, forstjóri hjá TrustNordisk en það er eitt stærsta sölu- og dreifingarfyrirtækið á Norðurlöndum. Loks hlökkum við hjá RIFF til að taka á móti Rémi Burah, aðstoðarforstjóri og stjórnarmaður hjá ARTE sem er ein virtasta og áhrifamesta menningarsjónvarpsstöð Evrópu, en Remí hefur komið að framleiðslu um 300 kvikmynda.
Hjá þessum sérfræðingum gefst einstakt færi á að ná beinu sambandi við fólk sem er sannkallað hreyfiafl í heimi kvikmyndanna, nokkuð sem er sérstaklega áríðandi nú um stundir þegar fagfólk í greininni hér heima hefur ítrekað talað um „neyðarástand í kvikmyndageiranum“ og „frost í greininni“. Við hvetjum áhugasama til að tryggja sér pláss á Bransadögum.
EINSTAKT AÐGENGI AÐ ÁHRIFAFÓLKI
Bransadagar RIFF eru fimm dagar af þéttri dagskrá þar sem fram fara pallborðsumræður, meistaranámskeið og samtöl augliti til auglitis við fólk sem er vant því að láta hlutina gerast í heimi kvikmyndanna. Auk þess eiga þátttakendur þess kost að njóta heils dags í íslenskri náttúru með fagfólkinu í afslöppuðu umhverfi í hinni árlegu bransaferð RIFF. Í meira en tvo áratugi hefur Reykjavík laðað til sín margar af áhrifamestu röddum kvikmyndalistarinnar og má þar á meðal telja Miloš Forman, Jim Jarmusch, Ruben Östlund, Isabelle Huppert, Mads Mikkelsen og Claire Denis. Ár hvert í septembermánuði bætist í hóp þekktra þátttakenda í Bransadögum.
LAND Í FÓKUS: PORTÚGAL
Í ár beinum við kastljósinu að ríkri kvikmyndahefð Portúgals. Þemað endurspeglast meðal annars í pallborðsumræðum um alþjóðlega meðframleiðslu og þremur verkefnum með portúgölskum þátttakendum í Work in Progress Showcase-hlutanum.
Þá verður sérstakur Portúgalsdagur á dagskrá, með vandað úrval portúgalskra kvikmynda, ítarleg samtöl við heiðursgesti og öflug sendinefnd frá Portúgal sem sækir Industry Days í Reykjavík. Meðal gestanna eru:
- Maria de Medeiros — leikkona og heiðursgestu
- João Pedro Rodrigues — leikstjóri og heiðursgestur
- Edgar Medina — framleiðandi hjá Arquipélago Filmes
- Manuel Claro — varaforseti Portúgölsku kvikmyndastofnunarinnar
- Vítor Pinheiro — framkvæmdastjóri Portúgölsku kvikmyndastofnunarinnar
Fleiri nöfn verða kynnt síðar.
Bransadagar RIFF fara fram dagana 29. september til 3. október

