0%
Riff Logo

Dagur 10 á RIFF 2026

Tíundi dagur RIFF rennur upp á morgun og nú fer að styttast í lok hátíðarinnar!
april captains

April Captains + Extended Talk

Háskólabíó
3. október, kl 17:10 (5:10pm)

Leikstjóri: Maria De Medeiros

Leikstjóri tekur þátt í spjalli á sýningunni.

Við erum stödd í Portúgal aðfaranótt 25. apríl 1974. Útvarpið leikur þá hið bannaða lag Grândola til marks um að stundin sé runnin upp. Um leið hefst valdarán hersins sem breytti ásýnd Portúgal og um leið örlögum víðáttumikilla nýlenda ríkisins í Afríku.

The Ornithologist + Intro

Háskólabíó
3. október, kl 14:40 (2:40pm)

Leikstjóri: João Pedro Rodrigues

Leikstjóri kynnir myndina. 

Fernando, einmana fuglafræðingur, leitar að sjaldgæfum svörtum storkum við afskekkta á í norðurhluta Portúgals þegar straumþungir flúðirnar hrífa hann með sér. Kínverskar pílagrímsstúlkur, sem eru á leið til Santiago de Compostela, bjarga honum og þá leggur hann af stað inn í dimman og dularfullan skóg til að komast aftur á rétta leið. Þar mætir hann óvæntum og óhugnanlegum hindrunum og fólki sem reynir á þanþol hans.

ornithologist
if luck will come still hi res 223 3084765 zalgai

If Luck Will Come + Q&A

Háskólabíó

3. október, kl 12:30 (12:30pm)

Leikstjóri: Camille Bildsøe

Leikstjórinn tekur þátt í Spurt & svarað. 

Bernsku afganskra barna lýkur við fjórtán ára aldur undir stjórn talibana. Í niðurtalningu frá tólf til fjórtán ára aldurs halda Zahra og Zalgai fast í leikinn, þótt þögnin og skyldurnar þrengi sífellt að þeim. Sirkusinn sem þau elska verður þeirra síðasta uppreisn gegn bernskumissinum.

Christiania + Q&A

Háskólabíó
3. október, kl 19:40 (7:40pm)

Leikstjóri: Karl Friis Forchhammer

Leikstjóri og Lisa Friis taka þátt í Spurt & svarað.

Með áhrifamiklum og átakanlegum sögum sem spanna meira en 50 ár kannar CHRISTIANIA hvernig samfélag, sem byggt er á frelsi, samstöðu og andófi, heldur áfram að berjast fyrir rétti sínum til að vera til – á eigin forsendum.

christiania
la pieta still hi res 87 3023579 glaciar 9

Það sem hverfur (La Pietá) + Intro

Háskólabíó
3. október, kl 20:45 (8:45pm)

Leikstjórar: PEPE ANDREU, RAFA MOLÉS

Leikstjórar myndarinnar og Ragnar Axelsson, ljósmyndari, taka þátt í Spurt & svarað.

Fyrir rúmri öld settust Flosi Björnsson og átta systkini hans að undir Vatnajökli og helguðu líf sitt jöklinum. Þegar ljósmyndarinn Ragnar Axelsson snýr aftur að lokuðum bænum þar sem hann dvaldi sumarlangt í æsku, vekur hann rödd Flosa til lífs á ný, á meðan ísinn sem brestur yrkir sálumessu fyrir veröld sem er að hverfa.

Hex + Intro

Háskólabíó

3. október, kl. 22:00 (10:00pm)

Leikstjóri: Maja Holand

Leikstjóri kynnir myndina. 

Með hina alræmdu norsku svartmálmssenu í bakgrunni fylgir HEX þeim Nikoline, Victoriu og Johönnu eftir þegar þær stofna hljómsveitina Witch Club Satan án þess að kunna á nokkurt hljóðfæri. Næstu þrjú árin helga þær sig því að verða bæði nornir og tónlistarkonur og nýta svartmálminn sem farveg fyrir óbeislaðan kvenlegan kraft uns reyna fer á samheldnina, sannfæringuna og hugmyndina um frelsi. Hvað er að vera frjáls kona?

Copy of 2081128
teenage sex and death at camp miasma still hi res 240 3086782 campmiasma still 1 mubi

Teenage Sex and Death in Camp Miasma

Háskólabíó
3. október, kl 22:30 (10:30pm)

Leikstjóri: Jane Schoenbrun

Eftir margra ára hraðsoðnar framhaldsmyndir og dvínandi áhuga er Camp Miasma-myndaserían falin ungum og metnaðarfullum leikstjóra sem einsetur sér að blása nýju lífi í hana. Þegar hún leitar uppi dularfulla og einræna aðalleikkonu fyrstu myndarinnar dragast konurnar tvær inn í blóðugt víti langana, skelfingar og ofskynjana.

La Gradiva

Háskólabíó
3. október, kl 15:30 (3:30pm)

Leikstjóri: Marine Atlan

Bekkur framhaldsskólanema fer til Pompei til að skoða rústirnar og líkin sem Vesúvíus varðveitti undir öskunni. Ferðin reynist einstakt augnablik þar sem kraftur æskunnar mætir heimi þar sem tíminn hefur staðið í stað. Langanir þeirra brjótast upp á yfirborðið af óvæntum ákafa sem leiðir að lokum til þess að hin viðkvæma félagslega mynd sem hópurinn hefur myndað brestur.

la gradiva still hi res 114 3053928 2 still groupe with prof c films du poisson bibi film tv arte france cinema
6abe5f03ba70d8c0faac0208

Icelandic Shorts I & II

Háskólabíó

3. október, kl 13:15 (1:15pm)

Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.

International Shorts III

Háskólabíó

3. október, kl 21:00 (9:00pm)

Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.

6abe617a45d1a5d1ca9bad35
brace your heart still hi res 195 3082023 braceyourheart 1200x600 still credit nordiskfilm

Brace Your Heart

Háskólabíó 
3. október, kl 11:15 (11:15am)

Myndin fylgir hinni 15 ára Jo á degi sem virðist hversdagslegur en verður að djúpri sjálfsuppgötvun. Heillandi söngur Phaedru vekur hjá henni nýjar tilfinningar á meðan draumkenndar minningar, sambandið við skapstóra móður og óvæntur harmleikur fléttast saman í ljóðræna sögu um ást, missi og mörkin milli lífs og dauða.

Tin Castle

Háskólabíó

3. október, kl 18:25 (6:25pm)

Leikstjóri: Alexander Murphy

Við löngu gleymdan veg býr O’Reilly-fjölskyldan í hrörlegu hjólhýsi sem stendur eitt eins og kastali á víðáttumiklum engjum. Þar taka Pa’, Lisa og tíu börn þeirra á við árstíðirnar, erfingjar lífshátta sem eru að líða undir lok. Þegar fjölskyldunni er hótað útburði standa þau fast á hefðarrétti sínum og veita mótspyrnu – en hversu lengi enn?

2067350
small dogs bark loud

Small Dogs Bark Loud

Háskólabíó
3. október, kl. 11:00 (11:00am)

Leikstjóri Director: Nora Nivedita Tvedt

Hin tólf ára gamla Tuni lendir í ýmsum hremmingum í lífinu en hinn hundtryggi Salto hjálpar henni gegnum erfiða tíma. 

The Visitor

Háskólabíó
3. október, kl. 11:15 (11:15am)

Leikstjóri: Vytautas Katkus

Sumarið er á enda. Danielius, maður á fertugsaldri, snýr aftur í heimabæ sinn til að selja íbúð foreldra sinna. Þar sem ekkert rekur á eftir honum endurnýjar hann kynni sín af fólkinu og bænum sem hann tilheyrir ekki lengur. Um leið þarf hann að horfast í augu við kyrrláta en áleitna einsemd.

4. Visitor
heat still hi res 153 3069612 heat 4096x1716 still 01 1

Heat

Háskólabíó
3. október, kl. 13:30 (1:30pm)

Leikstjóri: Jacqueline Zünd

Loftslagsbreytingar raska lífi fólks og samböndum – ekki síst við Persaflóa, þar sem hitinn getur farið yfir 50°C og samfélagið skiptist milli þeirra fáu sem hafa efni á að verja sig gegn hitanum og innflytjenda sem eiga engra annarra kosta völ en að þola hann til að hafa í sig og á.

Ask E. Jean

Háskólabíó
3. október, kl. 19:00 (7:00pm)

Leikstjóri: Jacqueline Zünd

Bandaríski blaðamaðurinn E. Jean Carroll hefur skapað sér nafn sem brautryðjandi í blaðamennsku og farsæll álitsgjafi sem braut sér leið í hinum karllæga útgáfuheimi New York á níunda og tíunda áratugnum með óttalausri rödd sem var ólík öllum öðrum. Ask E. Jean segir frá ævintýralegu og viðburðaríku lífi þessarar einstöku fyrirmyndar og einu konunnar sem hefur unnið mál gegn Trump fyrir dómstólum – tvisvar.

ask e jean
the loneliest man in town still hi res 36 3004839 still 5 the loneliest man in town al cook vento film 2026 web

The Loneliest Man In Town

Háskólabíó
3. október, kl. 17:45 (5:45pm)

Leikstjórar: Tizza Covi, Rainier Frimmel

Myndin fjallar um tónlistarmanninn Al Cook, sem býr einsamall í íbúð fullri af minningum, hljómplötum, bókum og öðrum munum sem fylgja löngu lífi. Þegar ákveðið er að rífa húsið horfist hann í augu við að heimurinn sem hann byggði líf sitt á er að hverfa. Myndin er fyrst og fremst ljóðræn persónusaga um einmanaleika, missi, minningar, tónlist og það að þurfa að sleppa takinu á fortíðinni.

The Last First: Winter K2 + Intro

UPPSELT!

Háskólabíó
3. október, kl. 20:25 (8:25pm)

Leikstjóri: Amir Bar-Lev

Tómas Guðbjartsson verður með kynningu.

Amir Bar-Lev segir flókna, átakanlega og áhrifamikla sögu sem varpar ljósi á heim öfgakenndrar fjallamennsku og þá menningu sem þar er að taka breytingum. Myndin fjallar um leiðangurinn árið 2021, þegar fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson frá Íslandi og feðgarnir Ali og Sajid Sadpara frá Pakistan héldu af stað í þeim tilgangi að verða fyrstir til að klífa K2 að vetri til.

the last first winter k2 still hi res 115 3040364 thelastfirstwinterk2 feature 00001f

Share this post

VERTU Í BANDI

Tengdar færslur

Verðlaunamyndir RIFF 2026!

La Gradiva Gyllti Lundinn / The Golden Puffin Leikstjóri: Marine Atlan Umsögn dómnefndar:Fyrir einstaka tilfinningagreind sína og hæfileikann til að fanga ósagða strauma í samskiptum fólks veitir dómnefndin verðlaun fyrir verk sem

Read More »
DAGSKRÁ

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0