0%
Riff Logo

Dagur 3 á RIFF 2026

Það er nóg um að vera á degi 3 á RIFF fyrir alla aldurshópa! Fallegar og ævintýralegar myndir fyrir börnin, gæðamyndir fyrir sanna kvikmyndaunnendur og Spurt & svarað með áberandi aðilum úr kvikmyndabransanum. Hlökkum til að sjá ykkur!
unnamed

Meistaraspjall: Hjartað í hasarnumrt + Sigurjón Sighvatsson

Háskólabíó
26. september, kl 18:30 (6:30pm)

David Leitch, Kelly McCormick og klipparinn Elísabet Ronaldsdóttir kafa ofan í sköpunarferlið á bak við nokkrar af sínum þekktustu kvikmyndum. Þar á meðal er Bullet Train, sem verður sýnd í sama sal kl. 16:15 – kjörið tækifæri til að sjá myndina áður en meistaraspjallið hefst.

Hellabíó: Ránið á týndu örkinni

Raufarhólshellir
26. september, kl 16:00 (4:00pm)

26. september, kl 20:00 (8:00pm)

Hellabíómynd RIFF í ár er engin önnur en Ránið á týndu örkinni (Raiders of the Lost Ark), sem var aðsóknarmesta mynd veraldar árið 1981 og telst í dag til allra bestu ævintýramynda kvikmyndasögunnar. Myndin festi Steven Spielberg í sessi sem einn athyglisverðasti leikstjóri samtímans og gerði Harrison Ford að stærstu kvikmyndastjörnu heims.

raiders of the lost ark still hi res 206 3082855 raiders4
lucy lost still hi res 251 3124251 lucy lost rochers 1920x1080 sans cmjn

Týnda stelpan

Háskólabíó
26. september, kl 22:00 (10:00pm)

Leikstjóri: Olivier Clerty

Á Scilly-eyjum árið 1915 vex Lucy úr grasi hjá nánu samfélagi sjómanna, en sjálf man hún lítið úr fortíð sinni. Á meðan fyrri heimstyrjöldin geisar kynnist Lucy dularfullri stelpur sem hjálpar henni að afhjúpa fortíð sína og finna sinn stað í tilverunni. Sýnd með íslensku tali.

Paper Tiger

Háskólabíó
26. september, kl 19:40 (7:40pm)

Leikstjóri: James Gray

Í þessu áhrifamikla og ákafa drama James Gray flækjast tveir bræður í ráðabrugg sem reynist of gott til að vera satt. Þegar þeir reyna að fóta sig í hættulegum heimi rússnesku mafíunnar fara fjölskylduböndin að trosna, með afdrifaríkum afleiðingum. Með Adam Driver og Scarlett Johansson í aðalhlutverkum.

paper tiger still hi res 243 3101736 pt stills rgb m
full steam ahead still hi res 246 3087211 fullsteamahead still 17

Full Steam Ahead + Impact Talk

Háskólabíó
26. september, kl 17:05 (5:05pm)

Leikstjórar: Susan Muska, Greta Olafsdottir

Full Steam Ahead beinir sjónum að konunum sem hafa átt þátt í að móta jarðhita- og orkugeira Íslands – sviðum þar sem vísindalegar framfarir og nýsköpun hafa ekki alltaf farið saman við jöfn tækifæri á vinnumarkaði.

Að sýningu lokinni leiða leikstjórar myndarinnar og konurnar sem koma fram í henni, eða tengjast henni með öðrum hætti, saman hesta sína í Samtal til áhrifa. Meðal þátttakenda eru Hrefna Kristmannsdóttir, Hildigunnur Thorsteinsson, Edda Sif Pind Aradóttir, Irma Erlingsdóttir og Málfríður Ómarsdóttir. Þar verður rætt af hreinskilni um jafnrétti kynjanna á þessu sviði: leiðirnar sem þær hafa farið inn í hefðbundin karlastörf, þær hindranir og vinnustaðamenningu sem þær hafa mætt, breytingar milli kynslóða og það sem enn á eftir að breytast.

Umræðunni stýrir Guðrún Elsa Bragadóttir, fræðikona í kynjafræðum. Rætt verður um hvað raunverulegt jafnrétti felur í sér umfram sýnileika og fulltrúa – allt frá aðgengi og forystu til viðurkenningar, stofnanamenningar og þeirra aðstæðna sem gera konum kleift að byggja upp og viðhalda starfsferli á sviði vísinda og orkumála.

A Day in the Life of Jo: Chapter Phaedra

Háskólabíó
26. september, kl 13:10 (1:10pm)

Leikstjóri: Jacqueline Lentzou

Myndin fylgir hinni 15 ára Jo á degi sem virðist hversdagslegur en verður að djúpri sjálfsuppgötvun. Heillandi söngur Phaedru vekur hjá henni nýjar tilfinningar á meðan draumkenndar minningar, sambandið við skapstóra móður og óvæntur harmleikur fléttast saman í ljóðræna sögu um ást, missi og mörkin milli lífs og dauða.

2113696 1
congo boy still hi res 210 3083103 2026 makongo films unite kiripifilms karta film canal e claircie

Congo Boy

Háskólabíó
26. september, kl 11:15 (11:15am)

Leikstjóri: Rafiki Fariala

Bangui, Mið-Afríkulýðveldinu. Hinn 17 ára Robert dreymir um að eiga sér framtíð í tónlistarheiminum, en borgarastyrjöld hefur sett landið á annan endann. Þegar báðir foreldrar hans eru fangelsaðir þarf hann að sjá einn um fjögur yngri systkini sín. Hann reynir að láta daglegt líf ganga upp, sinnir ýmsum tilfallandi störfum, undirbýr sig fyrir skólapróf og kemur fram á tónleikum – staðráðinn í að láta drauminn rætast.

Heat + Q&A

Háskólabíó
26. september, kl 17:30 (5:30pm)

Leikstjóri: Jacqueline Zünd

Loftslagsbreytingar raska lífi fólks og samböndum – ekki síst við Persaflóa, þar sem hitinn getur farið yfir 50°C og samfélagið skiptist milli þeirra fáu sem hafa efni á að verja sig gegn hitanum og innflytjenda sem eiga engra annarra kosta völ en að þola hann til að hafa í sig og á.

heat still hi res 153 3069612 heat 4096x1716 still 01 1
nightborn still hi res 204 3082683 key nightborn by nikita sevcov 50

Nightborn + Intro

Háskólabíó
26. september, kl 22:00 (10:00pm)

Leikstjóri: Hanna Bergholm

Í finnskum skógi hefja Saga og eiginmaður hennar, Jon, nýjan kafla sem foreldrar. En ógnvekjandi skuggi grunsemda um nýfætt barn þeirra hvílir á gleði Sögu, sem Jon veit ekki af, og smám saman myndast gjá á milli þeirra, þegar Saga glímir ein við þann óþægilega sannleika sem hún telur sig hafa uppgötvað. Hún neyðist til að horfast í augu við óttann sem ógnar fjölskyldunni.

Dissociated Me + Q&A

Háskólabíó
26. september, kl 13:15 (1:15pm)

Leikstjóri myndarinnar, Janaé Rachel Ballot, tekur þátt í Spurt og svarað.

Hvött áfram af klipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur reynir kona ein að gera kvikmynd um stormasama fortíð sína þar sem ýmis áföll í æsku koma við sögu. Án handrits velur hún leikara og leitar að tökustöðum, en verður svo fyrir bíl í miðju framleiðsluferlinu. Þegar áformin um kvikmyndina hrynja sleppir hún takinu á sögunni sem hún taldi sig verða að segja og nær loks aftur tökum á eigin lífi.

26. september, kl. 13:15 í Háskólabíói.

dissociated me still hi res 9 2979706 still9
staycation

Íslenskar stuttmyndir + Q&A

Háskólabíó
26. september 

Íslenskar stuttmyndir I Icelandic Shorts I kl 11:00 (11:00am)

Íslenskar stuttmyndir II Icelandic Shorts II kl 13:30 (1:30pm)

Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.

Pulp: What Do You Do for an Encore?

Háskólabíó
25. september, kl 22:00 (10:00pm)

Leikstjóri: Garth Jennings

Myndin er spennandi sambland af stórbrotnasta sjónarspili sem sviðsett var fyrir stærstu tónleika Pulp til þessa, hlutum frá alþjóðlegum tónleikaferðalögum sveitarinnar í tilefni plötunnar More, fyrstu plötu Pulp í 24 ár og fjögurra áratuga litríku og áður óséðu safnefni.

Pulp What Do You Do for an Encore
light pillar still hi res 171 3075909 4

Light Pillar

Háskólabíó
26. september, kl 15:00 (3:00pm)

Leikstjóri: Xu Zao

Framtíðin. Vetur. Geimferðir eru ekki lengur draumur. Einmana ræstingamaður sér um lóðina við niðurnídda og gjaldþrota kvikmyndaverksmiðju. Dag einn hefst fyrir þó rómantískt ferðalag þegar hann kynnist leikkonu í undurfögrum sýndarheimi, þar sem mörkin milli raunveruleika og ímyndunar verða sífellt óljósari.

Future Voices

Háskólabíó
26. september, kl 19:00 (7:00pm)

Einstakur viðburður fyrir unglinga og jafnframt sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Sýndar verða öflugar stuttmyndir eftir menntskælinga og auk þess fá áhorfendur tækifæri til að vera í rýnihóp fyrir nýja íslenska unglingamynd. Vala Ómarsdóttir leikstjóri og Hlín Jóhannesdóttir framleiðandi munu sýna brot úr myndinni, taka við spurningum og dei-la reynslu sinni á sviðinu. Allt ungt fólk er velkomið á viðburðinn, kvikmyndaáhugafólk sérstaklega.

6ab67e3a7a0dd0e1264d4810
2062091

The Siege of Paradise

Háskólabíó
26. september, kl 17:30 (5:30pm)

Leikstjóri: Gar O’Rourke

Tæplega þrjú þúsund íbúar þurfa að þola ágang fjögurra milljóna ferðamanna ár hvert í strandbænum Cinque Terre á Ítalíu. Við fylgjumst með sex einstaklingum og afdrifum þeirra eitt sumarið í grátbroslegri sögu af ferðamannaparadís sem er að kikna undan ferðamennsku sem drifin er áfram að síbylju samfélagsmiðla.

Myndin verður einnig sýn á sunnudaginn klukkan 16:40 ásamt samtali til áhrifa.

Charter

Háskólabíó
26. september, kl 11:00 (11:00am)

Leikstjóri: Amanda Kernell

Alice er fráskilin móðir tveggja barna, sem hefur ekki fengið að hitta þau í tvo mánuði á meðan beðið er forsjárdóms. Þegar sonur hennar hringir grátandi um miðja nótt tekur hún örvæntingarfulla ákvörðun: hún tekur börnin ólöglega með sér í leiguflugi til Kanaríeyja, í þeirri von að þau nái aftur tengslum og að hún geti snúið við stöðunni sér í hag.

Charter
2075470

The Fires

Háskólabíó
26. september, kl 19:20 (7:20pm)

Leikstjóri: Ugla Hauksdóttir

Anna Arnardóttir, Iceland’s top volcanologist, faces two disasters at once: a volcanic eruption that threatens the safety of the capital city and a love affair that could destroy her marriage.

Eternal Flame

Háskólabíó
26. september, kl 21:30 (9:30pm)

Leikstjóri: Pedro Ramalhete

João og Clara gengu saman í kvikmyndaskóla en hefur síðan vegnað misjafnlega; hann er atvinnulaus en hún starfar sem aðstoðarmaður framleiðanda. Dag einn hittast þau fyrir tilviljun og þá býður Clara honum að taka þátt í mynd sem hún vinnur að. Þessi tregablandna gamanmynd er óður til portúgalskrar kvikmyndagerðar og kvikmynda almennt.

eternal flame
atomic blonde still hi res 242 3090567 schermafbeelding 2026 08 18 131645

Atomic Blonde

Háskólabíó
26. september, kl 19:45 (7:45pm)

Leikstjóri: David Leitch

Leynilögreglumaður MI6 er sendur til Berlínar á tímum kalda stríðsins til að rannsaka morð á samstarfsmanni sínum og endurheimta lista yfir týnda tvöfalda njósnara. Stórkostleg frammistaða Charlize Theron og stórfenglegar bardagasenur undirstrika sjónræna, áhrifamikla og stílhreina upplifun með neonáferð í kvikmyndatökunni og nostalgískri tónlist frá níunda áratugnum.

Share this post

VERTU Í BANDI

Tengdar færslur

DAGSKRÁ

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0