0%
Riff Logo

Dagur 9 á RIFF 2026

Föstudagurinn verður sannkölluð bíóveisla! Portúgal er í fókus á RIFF og dagskráin er full af spennandi uppákomum.
Samuel L Jackson in Pulp Fiction 2008214140

Hamborgaraveisla: Pulp Fiction

Háskólabíó
2. október, kl 19:00 (7:00pm)

Leikstjóri: Quentin Tarantino

Hvað er betra en góð mynd og hamborgari? Pulp Fiction eftir Quentin Tarantino á stórum skjá og sannkölluð hamborgaraveisla í boði Hamborgarabúllu Tómasar. 

Portúgalska stórleikkonan Maria de Medeiros kynnir myndina. Hún fór með eitt aðalhlutverkanna í myndinni sem Fabienne, unnusta Butch (Bruce Willis). Klassík sem þarf enga kynningu, en enginn má missa af.

If Luck Will Come + Impact Talk

Háskólabíó

2. október, kl 13:00 (1:00pm)

Leikstjóri: Camille Bildsøe

Bernsku afganskra barna lýkur við fjórtán ára aldur undir stjórn talibana. Í niðurtalningu frá tólf til fjórtán ára aldurs halda Zahra og Zalgai fast í leikinn, þótt þögnin og skyldurnar þrengi sífellt að þeim. Sirkusinn sem þau elska verður þeirra síðasta uppreisn gegn bernskumissinum.

Leikstjóri myndarinnar, Camille Bildsøe, og Hanna Björk Valdimarsdóttir taka þátt í Spurt & svarað.

if luck will come still hi res 223 3084765 zalgai
will o wisp

Will-o’-the-Wisp + Masterclass

Háskólabíó
1. október, kl 19:35 (7:35pm)

Leikstjóri: João Pedro Rodrigues

Að lokinni sýningu kemur leikstjórinn João Pedro Rodrigues fram á RIFF í sérstöku meistaraspjalli um höfundarverk sem hefur víkkað út möguleika hinsegin kvikmyndagerðar. Rodrigues er einn mikilvægasti kvikmyndagerðarmaður Portúgals um þessar mundir og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir beitta nálgun, dirfsku og óhefta listræna sýn. Í kvikmyndum hans eiga hinsegin langanir, erótík, helgisiðir og fantasía milliliðalaust samtal við hinn sýnilega veruleika. Kvikmyndagerð hans ferðast óhindrað milli næmrar, heimildarmiðaðrar athugunar og goðsagnar, og gerir líkama, sjálfsmyndir og landslag að vettvangi umbreytinga. Með Rodrigues verður João Rui Guerra da Mata, lífsförunautur hans og náinn samstarfsmaður um árabil, en þeir hafa leikstýrt nokkrum kvikmyndum saman.

Á dánarbeði sínu er hans konunglega hátign, Alfredo, konungur án krúnu, leiddur aftur til minninga úr fjarlægri æsku þegar hann dreymdi um að verða slökkviliðsmaður. Fundur hans með Afonso, leiðbeinanda hjá slökkviliðinu, markar upphaf nýs kafla í lífi ungu mannanna tveggja sem sökkva sér í ást og löngun og deila jafnframt vilja til að breyta ríkjandi ástandi.

Dua + Q&A

Háskólabíó
2. október, kl 17:00 (5:00pm)

Leikstjóri: Blerta Basholli

Leikstjóri myndarinnar tekur þátt í Spurt & svarað.

Stríð vofir yfir í Pristínu, Kosovo, seint á tíunda áratugnum. Hin 13 ára Dua leitast eftir að tilheyra í samfélaginu og eigin líka á uppbrotartímum. Eftir áfall í samfélaginu verður hún sjálf skotmark en óttalaus stelpa, Maki, dregur hana með sér í óvænta mótspyrnu.

dua
nightborn still hi res 204 3082683 key nightborn by nikita sevcov 50

Nightborn

Háskólabíó

2. október, kl. 22:00 (10:00pm)

Leikstjóri: Hanna Bergholm

Í finnskum skógi hefja Saga og eiginmaður hennar, Jon, nýjan kafla sem foreldrar. En ógnvekjandi skuggi grunsemda um nýfætt barn þeirra hvílir á gleði Sögu, sem Jon veit ekki af, og smám saman myndast gjá á milli þeirra, þegar Saga glímir ein við þann óþægilega sannleika sem hún telur sig hafa uppgötvað. Hún neyðist til að horfast í augu við óttann sem ógnar fjölskyldunni.

Two Times João Liberada

Háskólabíó
2. október, kl 17:00 (5:00pm)

Leikstjóri: Paula Tomás Marques

João leikur í ævisögulegri kvikmynd um Liberödu, manneskju sem samræmdist ekki hefðbundnum kynjaviðmiðum og var ofsótt af rannsóknarréttinum. Þegar leikstjóri myndarinnar lamast með dularfullum hætti sækja óhugnanlegir draumar á João, sem á í erfiðleikum með að heiðra sögu Liberödu. Myndin er fyrsta leikna kvikmynd Paula Tomás Marques í fullri lengd, en hún er rísandi nafn nýrrar kynslóðar portúgalskra kvikmyndagerðarmanna. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín.

Two Times Joao Liberada
april captains

April Captains

Háskólabíó
2. október, kl 21:25 (9:15pm)

Leikstjóri: Maria De Medeiros

Við erum stödd í Portúgal aðfaranótt 25. apríl 1974. Útvarpið leikur þá hið bannaða lag Grândola til marks um að stundin sé runnin upp. Um leið hefst valdarán hersins sem breytti ásýnd Portúgal og um leið örlögum víðáttumikilla nýlenda ríkisins í Afríku.

The Dashed Lines

Háskólabíó
2. október, kl 15:00 (3:00pm)

Leikstjóri: Anxos Fazáns

Bea, fimmtug kona sem er að ganga í gegnum skilnað, og Denís, 28 ára transmaður sem stendur frammi fyrir óvissri framtíð í atvinnulífinu, hittast við óvæntar aðstæður sem munu breyta lífi þeirra beggja til frambúðar.

dashed lines
a day in the life of jo

A Day in the Life of Jo: Chapter Phaedra 

Háskólabíó 
2. október, kl 17:00 (5:00pm)

Myndin fylgir hinni 15 ára Jo á degi sem virðist hversdagslegur en verður að djúpri sjálfsuppgötvun. Heillandi söngur Phaedru vekur hjá henni nýjar tilfinningar á meðan draumkenndar minningar, sambandið við skapstóra móður og óvæntur harmleikur fléttast saman í ljóðræna sögu um ást, missi og mörkin milli lífs og dauða.

Tristan Forever

Háskólabíó

2. október, kl 17:30 (5:30pm)

Leikstjórar: Tobias Nölle, Loran Bonnardot

Í þrjá áratugi hefur læknir í París átt í vináttu við sjómann sem býr á afskekktustu byggðu eyju heims; Tristan da Cunha í Suður-Atlantshafi. Nú snýr hann þangað aftur, í þetta sinn með það fyrir augum að setjast þar að til frambúðar.

tristan
2067662

Do You Love Me

Háskólabíó
2. október, kl. 19:30 (7:30pm)

Leikstjóri: Lana Daher

Elskarðu mig? er fjörugt og persónulegt ferðalag um hljóð- og myndræna minningu Líbanons, alfarið samsett úr safnefni. Myndin er ástarbréf til Beirút og spannar sjö áratugi af kvikmyndum, sjónvarpsefni, heimamyndböndum og ljósmyndum. Um leið kannar hún sameiginlegt sálarlíf íbúa Líbanons sem er í senn mótað af gleði og nánd, eyðileggingu og missi.

International Shorts II

Háskólabíó

2. október, kl 21:00 (9:00pm)

Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.

6ab51445fd152e85a6550034
6abd1cf4cab53bfa07efa559

Panel: Co-Producing Across Difference Iceland, Portugal, and the Logic of Small Markets

Norræna húsið
2. október, kl. 15:00 (3:00pm)

Kvikmyndabransinn á smærri evrópskum mörkuðum reiðir sig jafnan á meðframleiðslu og styrki til þess að laða að fjárfesta, byggja upp alþjóðlegt samstarf og gera metnaðarfull kvikmyndaverkefni möguleg. En hvað gerist þegar horft er lengra en til þeirra upphæða sem birtast í helstu fyrirsögnum? Með Ísland og Portúgal sem útgangspunkta ber pallborðið saman hvernig kvikmyndaiðnaðir á litlum mörkuðum notast við endurgreiðslur, opinbera fjármögnun og alþjóðlega meðframleiðslu til að viðhalda samkeppnishæfni sinni. Fulltrúar kvikmyndastofnana og sjálfstæðir framleiðendur munu rýna í bæði stefnumótandi metnaðinn á bak við þessi kerfi og raunveruleikann sjálfan: aðgengi að fjármagni, samfelldni í vinnu, eyðslu innanlands, fagbóta og uppbyggingu starfsliðs, framleiðslugetu og möguleika staðbundinna framleiðenda og kvikmyndagerðarfólks til að byggja upp sjálfbæran og stöðugan feril.


Þátttakendurnir eru Baltasar Kormákur, Edgar Medina, Manuel Claro, Martin Schlüter, Rémi Burah og Skarphéðinn Guðmundsson. Þorfinnur Ómarsson stýrir.

Share this post

VERTU Í BANDI

Tengdar færslur

Verðlaunamyndir RIFF 2026!

La Gradiva Gyllti Lundinn / The Golden Puffin Leikstjóri: Marine Atlan Umsögn dómnefndar:Fyrir einstaka tilfinningagreind sína og hæfileikann til að fanga ósagða strauma í samskiptum fólks veitir dómnefndin verðlaun fyrir verk sem

Read More »
DAGSKRÁ

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0