0%
Riff Logo

Eftirlætismyndir stjórnanda RIFF

Alþjóðleg kvikmyndahátíðin í Reykjavík 2026 er hafin

Það er af nægu að taka af hágæða bíómyndum á RIFF 2026 og eitthvað fyrir alla í dagskrá hátíðarinnar. Við fengum Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF til að velja nokkrar myndir á RIFF í ár sem hún hefur sérstakt dálæti á. Þar kennir ýmissa grasa enda hefur Hrönn farið á flestar af stærstu kvikmyndahátíðum ársins til að finna myndir fyrir dagskrá RIFF.

„Mér finnst úrvalið á RIFF í ár með besta móti og margt sem ég hlakka til að sýna gestum hátíðarinnar,“ segir Hrönn um dagskrána í ár. „Svo erum við með virkilega sterkan hóp erlends fagfólks sem kemur fram á RIFF í ár og tekur þátt í málþingum í kjölfari sýninga, eða eins og við köllum það, Samtöl til áhrifa. Ég hvet fólk endilega til að vera vakandi fyrir þeim sýningum sem eru með slíkt samtal í lok myndarinnar. Það stækkar upplifunina við að sjá myndina svo mikið og tekur á svo mörgum málum sem tengjast umfjöllunarefninu hverju sinni. 

la gradiva still hi res 114 3053928 2 still groupe with prof c films du poisson bibi film tv arte france cinema

La Gradiva – Spor í öskunni

Leikstjóri: Marine Atlan

Bekkur framhaldsskólanema fer til Pompei til að skoða rústirnar og líkin sem Vesúvíus varðveitti undir öskunni. Ferðin reynist einstakt augnablik þar sem kraftur æskunnar mætir heimi þar sem tíminn hefur staðið í stað. Langanir þeirra brjótast upp á yfirborðið af óvæntum ákafa sem leiðir að lokum til þess að hin viðkvæma félagslega mynd sem hópurinn hefur myndað brestur.

Club Kid – Partýpabbi

Leikstjóri: Jordan Firstman

Club Kid er margverðlaunuð mynd sem fjallar um Peter, harðan partýaðdáanda og næturklúbbaskemmtikraft í New York sem lifir óábyrgu og hedonísku lífi. Skyndilega uppgötvar hann að hann á tíu ára son sem hann vissi ekki af. Þegar hann neyðist til að taka ábyrgð á drengnum byrjar lífið smám saman að breytast. Myndin blandar saman gríni, næturlífi, tilfinningum og sögu um óvænt föðurhlutverk og þroska.

club kid still hi res 0 3078795 d005 v3 1567954
fatherland still hi res 226 3113271 fatherland still 3 agatagrzybowska

Fatherland – Föðurlandið

Leikstjóri: Paweł Pawlikowski

Árið 1949 leggja þýski rithöfundurinn Thomas Mann og dóttir hans Erika upp í bílferð um Þýskaland í rústum, frá Frankfurt, sem er undir stjórn Bandaríkjanna, til Weimar, sem er undir stjórn Sovétríkjanna.

Dua – Dúa

Leikstjóri: Blerta Basholli

Dua gerist í Pristínu seint á tíunda áratugnum þegar spennan milli þjóðarhópa fer vaxandi og stríðið í Kosovo nálgast. Dua er aðeins 13 ára og glímir við breytingar gelgjuskeiðsins og erfiðar aðstæður í samfélaginu. Þegar ákveðinn atburður gerir hana að skotmarki myndar hún náin tengsl við hugrakka stúlku, Maki, sem hvetur hana til mótspyrnu og sjálfstæðis.

2109790
heat still hi res 153 3069612 heat 4096x1716 still 01 1

Heat – Hiti

Leikstjóri: Jacqueline Zünd

Loftslagsbreytingar raska lífi fólks og samböndum – ekki síst við Persaflóa, þar sem hitinn getur farið yfir 50°C og samfélagið skiptist milli þeirra fáu sem hafa efni á að verja sig gegn hitanum og innflytjenda sem eiga engra annarra kosta völ en að þola hann til að hafa í sig og á.

Christiania – Kristjanía

Leikstjóri: Karl Friis Forchhammer

Með áhrifamiklum og átakanlegum sögum sem spanna meira en 50 ár kannar CHRISTIANIA hvernig samfélag, sem byggt er á frelsi, samstöðu og andófi, heldur áfram að berjast fyrir rétti sínum til að vera til – á eigin forsendum.

christiania still hi res 72 3018942 stills christiania 02 credit tambo film
nightborn still hi res 204 3082683 key nightborn by nikita sevcov 50

Nightborn – Barn næturinnar

Leikstjóri: Hanna Bergholm

Í finnskum skógi hefja Saga og eiginmaður hennar, Jon, nýjan kafla sem foreldrar. En ógnvekjandi skuggi grunsemda um nýfætt barn þeirra hvílir á gleði Sögu, sem Jon veit ekki af, og smám saman myndast gjá á milli þeirra, þegar Saga glímir ein við þann óþægilega sannleika sem hún telur sig hafa uppgötvað. Hún neyðist til að horfast í augu við óttann sem ógnar fjölskyldunni.

Lucy Lost – Týnda stelpan

Leikstjóri: Olivier Clerty

Á Scilly-eyjum árið 1915 vex Lucy úr grasi hjá nánu samfélagi sjómanna, en sjálf man hún lítið úr fortíð sinni. Á meðan fyrri heimstyrjöldin geisar kynnist Lucy dularfullri stelpur sem hjálpar henni að afhjúpa fortíð sína og finna sinn stað í tilverunni.

lucy lost still hi res 251 3124251 lucy lost rochers 1920x1080 sans cmjn

Share this post

VERTU Í BANDI

Tengdar færslur

DAGSKRÁ

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0