Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

RIFF býður þér með í iður jarðar … ef þú þorir!

Hellabíóið er jafnan sá sérviðburður á RIFF sem vekur hvað mesta athygli og í ár er komið að myndinni sem hvað oftast hefur verið spurt um í þessu sambandi. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykajvík býður nú gestum sínum á sannkallaða hryllingsveislu djúpt undir yfirborði jarðar þegar kvikmyndin The Descent verður sýnd í Raufarhólshelli þann 3. október 2025. Þetta er einstök sýning þar sem kvikmyndaupplifun og skuggahliðar náttúrunnar renna saman í magnaða heild sem vart er af þessum heimi. Þetta er viðburður sem þú munt hvorki gleyma – né vilja missa af.

News on the website cave in
7

Hrollvekja sem fer undir yfirborð jarðar – og húð áhorfenda

The Descent (2005) er kolsvört og krassandi hrollvekja frá leikstjóranum Neil Marshall sem hefur öðlast sess sem ein áhrifamesta hryllingsmynd 21. aldar. Myndin segir frá sex ævintýragjörnum konum sem halda í spennandi hellaferð djúpt í Appalachia-fjöllunum í Bandaríkjunum. Það sem átti að vera ævintýri lífsins breytist skjótt í martröð þegar hellisopið lokast og hópurinn lendir á villigötum í ókortlögðum helli, og það sem enn verra er—þær eru ekki einar í myrkrinu.

Myndin tekst á við ótta af mörgum toga: myrkfælni, innilokunarkennd, hið óþekkta, og síðast en ekki síst hinn nagandi efi um hversu vel maður treystir sínum bestu vinum. Marshall spilar listilega á taugarnar – enda eru þær þandar sem fiðlustrengir – og heldur áhorfendum föngnum í dimmu og þröngu rými þar sem andrúmsloftið þyngist með hverri mínútu. Með magnaðri tónlist, áhrifamiklu myndmáli og frábærum leik stendur The Descent sem sígild mynd í sínum flokki.

Fullkomin staðsetning – náttúran sem bíósalur

thelavatunnel hero image platform

Raufarhólshellir er einn lengsti hraunhellir Íslands, rúmlega 1300 metra langur, og býður upp á magnaða stemmingu fyrir hryllingsmynd þar sem myrkrið er ekki aðeins hluti af sögunni – heldur einnig sýningarstaðnum sjálfum. Áhorfendur munu ferðast inn í iður jarðar þar sem þeir munu horfa á myndina í einstöku umhverfi með hljóði sem magnar upp spennuna á óviðjafnanlegan hátt.

Þessi einstaka sýning er hluti af markmiði RIFF að færa kvikmyndir út fyrir hefðbundna sýningarstaði og skapa óvæntar og eftirminnilegar upplifanir fyrir áhorfendur. Hellabíó RIFF hefur áður vakið athygli víða um heim og sýningin á The Descent í Raufarhólshelli verður án nokkurs vafa með eftirminnilegustu upplifunum hátíðarinnar 2025.

6

Fyrir fjölskyldur:

Auk þessarar spennandi sýningar býður RIFF fjölskyldum einnig í töfrandi Hellabíó. Þann 3. október verður stop-motion teiknimynd Ira Carpelan, Hetjudáðir Múmínpabba - Ævintýri ungs Múmínálfs (2021), sýnd í hraunhellinum og mun fylla hann hlýju og undri. Þar rekur Múmínpabbi ævintýri sín fyrir Múmínálfinn, sem sjálfur er að feta sig í gegnum áskoranir unglingsáranna. Hlýleg og falleg saga, sýnd með íslensku tali í hinum heillandi Raufarhólshelli. Börn þurfa að vera í fylgd fullorðinna.

Takmarkaður fjöldi miða – tryggðu þér sæti strax

Aðeins er boðið upp á mjög takmarkaðan fjölda miða vegna aðstæðna í hellinum – og er því ráðlagt að tryggja sér aðgöngumiða sem allra fyrst. Miðasala fer fram á riff.is þar sem einnig má finna nánari upplýsingar um samgöngur, búnað og öryggisráðstafanir fyrir sýninguna.

Vertu með þegar kvikmynd og náttúra mætast í myrkri jarðar. Komdu í Raufarhólshelli þann 3. október og upplifðu The Descent og Ævintýri Múmínpabba – Æskuævintýri Múmínálfsins eins og aldrei fyrr – ef þú þorir.