Hinsegin sögur á RIFF

Hér má fræðast um brot úr hinsegin-dagskrá RIFF.

Í tilefni Hinsegindaga birti hátíðin um helgina brot af þeim myndum sem sýndar verða sem fjalla um hinsegin málefni, eða eru eftir hinsegin leikstjóra. Hátíðin fer fram í Hákólabíói dagana 24. september til 4. október. 

Hér má fræðast um brot úr hinsegin-dagskrá RIFF:

Partypabbi

Club Kid – Partýpabbi, eftir Jordan Firstman

Líf næturklúbbarekanda í New York, sem lifir fyrir djammið, tekur óvænta stefnu þegar tíu ára gamall sonur hans, sem hann vissi ekki af birtist skyndilega í líf hans. Myndin var frumsýnd í Un Certain Regard flokknum á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þetta er jafnframt fyrsta kvikmynd grínleikarans Jordan Firstman sem gerði garðinn frægann í HBO þáttum Rachel Sennott, I Love LA. En Firstman fer með aðalhlutverkið sjálfur í myndinni.

The Ornithologist – Fuglafræðingurinn, eftir João Pedro Rodrigues, portúgalskan heiðursgest hátíðarinnar 

Fernando er einrænn fuglafræðingur sem leitar að svartstorkum við norðurhluta Portúgals. Einn á flakki í dularfullum skógi leggur hann upp í súrrealískt ferðalag þar sem óvæntir fundir umbreyta honum smátt og smátt. Myndin hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Locarno, og var tilnefnd til aðalverðlauna á sömu hátíð.

Fuglafraedingurinn
Eldheit ast

Will-o’-the-Wisp – Eldheit ást, eftir João Pedro Rodrigues, portúgalskan heiðursgest hátíðarinnar 

Í þessari einstöku söngvamynd liggur Alfredo á dánarbeði sínu og rifjar upp æskuárin, þegar hann dreymdi um að verða slökkviliðsmaður. Kynni hans við Afonso, þjálfara hjá slökkviliðinu, marka upphaf nýs kafla í lífi þeirra beggja, þar sem ást, löngun og viljinn til að ögra samélaginu fléttast saman. Myndin hlaut tilnefningar á kvikmyndahátíðum víðsvegar í Evrópu og hlaut viðurkenningu á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og aðalverðlaun dómnefndar á evrópsku kvikmyndahátíðinni í Sevilla.

Two Times João Liberada / João Liberada þá og nú, eftir Paula Tomás Marques

Kvikmynd um kvikmyndagerð. Leikkonan João fer með aðalhlutverk í ævisögulegri kvikmynd um Liberödu, kynsegin persónu sem varð fyrir ofsóknum kirkjunnar. Þegar leikstjórinn lamast með dularfullum hætti fer João að glíma við martraðir og á í erfiðleikum með að heiðra sögu Liberödu. Myndin hlaut tvær tilnefningar á Berlinale kvikmyndahátíðinni.

Joao Liberada tha og nu
Vid erum Fado Bicha

As Fado Bicha – Við erum Fado Bicha, eftir Justine Lemahieu

Portúgölsk heimildarmynd. Lila og João, tvíeykið á bak við þjóðlaga- hljómsveitina Fado Bicha, gefa hinsegin sögum og baráttumálum rödd í nýjum búning. Í nánu umhverfi búningsherbergisins vakna spurningar um samband okkar við útlit, kynjahlutverk, tungumál og kynhneigð.

The Dashed Lines – Brotin líf, eftir Anxos Fazáns

Bea er fimmtug kona sem stendur í skilnaði og Denís er 28 ára transmaður sem er óöruggur um atvinnu sína. Óvænt atvik leiðir þau saman sem breytir lífi þeirra beggja til framtíðar.

Brotin lif
Nornaveidar

HEX – Nornaveiðar, eftir Maja Holand

Kvikmyndin fylgir þremur ungum konum sem að stofna hljómsveitina Witch Club Satan án þess að kunna á hljóðfæri. Þær heita því að verja næstu þremur árum í að verða nornir og tónlistarkonur, og nota metal-tónlist til að tjá óheflaðan kvennlegan kraft.

Share this post

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0