Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fer fram 24. september til 4. október. Í dagskrá hátíðarinnar kennir að vanda ýmissa grasa og í ár eru níu myndir í aðalkeppnisflokknum Vitrunum.
Í Vitrunum tefla leikstjórar fram sinni fyrstu eða annarri kvikmynd í fullri lengd og keppa um Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF. Keppnisflokkurinn gefur áhorfendum ár hvert færi á að uppgötva nýja kvikmyndagerðarmenn frá ólíkum heimshlutum. Sigurvegarinn verður svo tilkynntur við verðlaunaafhendingu á lokahátíð RIFF síðdegis laugardaginn 3. október kl. 17:00 í sal 3 í Háskólabíói.
„Myndirnar níu í Vitrunum í ár fara með okkur á afar ólíka staði, en hver þeirra sýnir fólk á augnabliki þegar lífið tekur óvænta stefnu,” segir Hrönn Marinódóttir, stjórnandi RIFF. „Hér eru sögur af ungu fólki sem leitar að sínum stað, fjölskyldum sem þurfa að horfast í augu við breytingar og ímyndunarafli sem opnar nýja sýn á veruleikann. Það er einmitt þetta sem við leitum að í keppnisflokki RIFF: kvikmyndagerðarfólki með eigin rödd og áræði til að segja sögur sem sitja eftir.“
Eftirfarandi myndir eru í flokknum í ár:
A day in the life of Jo: Chapter Phaedra / Dagur í lífi Jo

Leikstjóri: Jacqueline Lentzou
Myndin fylgir hinni 15 ára Jo á degi sem virðist hversdagslegur en verður að djúpri sjálfsuppgötvun. Heillandi söngur Phaedru vekur hjá henni nýjar tilfinningar á meðan draumkenndar minningar, sambandið við skapstóra móður og óvæntur harmleikur fléttast saman í ljóðræna sögu um ást, missi og mörkin milli lífs og dauða.
Þess má geta að leikstjórinn Lentzou er ekki ókunnug RIFF þvi hún hlaut Gullna eggið árið 2014 fyrir stuttmyndina Thirteen Blue og Gullna lundann árið 2021 fyrir sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Moon, 66 Questions.
Adult Supervision / Í fylgd með fullorðnum
Leikstjóri: Alex Schulman
Þrír feður fylgja dætrum sínum í skólaferðalag á afskekkta eyju. Þegar þangað kemur koma gamlar minningar upp á yfirborðið með tilheyrandi spennu uns fullorðna fólkið missir tökin á aðstæðum. Hver ræður – og hversu hættulegt er ástandið í raun?
Myndin er framlag Svíþjóðar til Óskarsverðlaunanna 2026, og leikstjórinn Schulman er í hópi þekktustu rithöfuna Svíþjóðar. Þá fer Gustav Skarsgård, bróðir Alexanders – heiðursgesti RIFF í ár – með eitt aðalhlutverkanna.

Chronovisor / Tímasjáin

Leikstjórar: Jack Auen, Kevin Walker
Beatrice er einræn, frönsk fræðikona sem sogast inn í leyndardómsfullan heim í leit sinni að lausn gátunnar um einskonar myndavél, smíðaða af leynireglu Benediktsmunka, sem getur fangað myndir af liðnum tíma. Fljótlega kemur í ljós að sumir eru reiðubúnir að verja leyndardóminn með öllum tiltækum ráðum í þessari sagnfræðilegu ráðgátu.
Chronovisor hefur vakið mikla athygli gagnrýnenda og skipaði efstu sæti í einkunnagjöf alþjóðlegra gagnrýnenda þegar myndin var heimsfrumsýnd í Bright Future-flokknum á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam (IFFR).
Club Kid / Partýpabbi
Leikstjóri: Jordan Firstman
Club Kid er margverðlaunuð mynd sem fjallar um Peter, harðan partýaðdáanda og næturklúbbaskemmtikraft í New York sem lifir óábyrgu og hedonísku lífi. Skyndilega uppgötvar hann að hann á tíu ára son sem hann vissi ekki af. Þegar hann neyðist til að taka ábyrgð á drengnum byrjar lífið smám saman að breytast. Myndin blandar saman gríni, næturlífi, tilfinningum og sögu um óvænt föðurhlutverk og þroska.
Myndin er frumraun Firstmans í leikstjórn kvikmyndar í fullri lengd. Hann skrifaði jafnframt handritið og leikur í henni. Hún varð ein þeirra mynda sem vöktu mesta athygli í Cannes og hörð samkeppni skapaðist um réttinn að henni, áður en A24 tryggði sér að lokum réttinn á heimsvísu.

Congo Boy / Drengurinn frá Kongó

Leikstjóri: Rafiki Fariala
Bangui, Mið-Afríkulýðveldinu. Hinn 17 ára Robert dreymir um að eiga sér framtíð í tónlistarheiminum, en borgarastyrjöld hefur sett landið á annan endann. Þegar báðir foreldrar hans eru fangelsaðir þarf hann að sjá einn um fjögur yngri systkini sín. Hann reynir að láta daglegt líf ganga upp, sinnir ýmsum tilfallandi störfum, undirbýr sig fyrir skólapróf og kemur fram á tónleikum – staðráðinn í að láta drauminn rætast.
Congo Boy er fyrsta leikna kvikmynd Fariala í fullri lengd, á eftir hinni rómuðu heimildarmynd hans We, Students!, sem var frumsýnd á RIFF árið 2022.
Dua / Dúa
Leikstjóri: Blerta Basholli
Dua gerist í Pristínu seint á tíunda áratugnum þegar spennan milli þjóðarhópa fer vaxandi og stríðið í Kosovo nálgast. Dua er aðeins 13 ára og glímir við breytingar gelgjuskeiðsins og erfiðar aðstæður í samfélaginu. Þegar ákveðinn atburður gerir hana að skotmarki myndar hún náin tengsl við hugrakka stúlku, Maki, sem hvetur hana til mótspyrnu og sjálfstæðis.
Dua er nýjasta mynd Blertu Basholli, sem vakti mikla athygli með frumraun sinni Hive. Myndin hlaut SACD-verðlaunin á Gagnrýnendavikunni í Cannes.

La Gradiva / Spor í sandinum

Leikstjóri: Marine Atlan
Bekkur framhaldsskólanema fer til Pompei til að skoða rústirnar og líkin sem Vesúvíus varðveitti undir öskunni. Ferðin reynist einstakt augnablik þar sem kraftur æskunnar mætir heimi þar sem tíminn hefur staðið í stað. Langanir þeirra brjótast upp á yfirborðið af óvæntum ákafa sem leiðir að lokum til þess að hin viðkvæma félagslega mynd sem hópurinn hefur myndað brestur.
Þessi mjög svo áhugaverða frumraun Marine Atlan í leikstjórn kvikmyndar í fullri lengd hlaut aðalverðlaun Gagnrýnendavikunnar í Cannes, AMI Paris Grand Prix.
Light Pillar / Ljóskeila
Leikstjóri: Xu Zao
Framtíðin. Vetur. Geimferðir eru ekki lengur draumur. Einmana ræstingamaður sér um lóðina við niðurnídda og gjaldþrota kvikmyndaverksmiðju. Dag einn hefst fyrir þó rómantískt ferðalag þegar hann kynnist leikkonu í undurfögrum sýndarheimi, þar sem mörkin milli raunveruleika og ímyndunar verða sífellt óljósari.
Light Pillar er fyrsta kvikmynd Xu Zao í fullri lengd. Hún var heimsfrumsýnd í Perspectives-flokknum á Berlínarhátíðinni 2026 og fléttar saman handteiknaðri hreyfimynd og leiknum atriðum með einstakri útkomu.

Skateboarding Is Not for Girls / Bretti og brúðarkaup

Leikstjóri: Dina Duma
Uppvaxtarsaga sem gerist í Norður Makedóníu. Fjölskylda hinnar 11 ára Adele stendur frammi fyrir sárri fátækt og hallast að þeirri aldagömlu hefð að selja stúlkur í hjónaband. Á sama tíma og Adele reynir að bjarga systur sinni frá örlögunum skráir hún sig í hjólabrettakeppni til þess að endurheimta frelsi sitt og von.
Dua er önnur kvikmynd Dinu Duma í fullri lengd hlaut Nora Ephron-verðlaunin á Tribeca-kvikmyndahátíðinni.
Sigurvegarinn verður tilkynntur við verðlaunaafhendingu á lokahátíð RIFF síðdegis laugardaginn 3. október kl. 17:00 í aðalsal Norræna hússins.




