Portúgal í Fókus á RIFF 2026

Á hverju ári beinir Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík kastljósi sínu að tilteknu landi, sýnir þaðan kvikmyndir og býður kvikmyndagerðarmönnum þaðan að koma á RIFF. Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Portúgal í fókus á RIFF árið 2026. Rómaðir portúgalskir kvikmyndagerðarmenn og spennandi nýjar raddir mætast í fjölbreyttu úrvali kvikmynda sem gefa innsýn í samtímakvikmyndagerð landsins. Hér má lesa um nýju portúgölsku myndirnar í fullri lengd sem verða sýndar á hátíðinni í ár:

AMÍLCAR​

Leikstjóri: Miguel Eek

Amílcar Cabral, oft nefndur Che Guevara Afríku, leiddi sjálfstæðisbaráttu Gíneu-Bissá og Grænhöfðaeyja þar til hann var myrtur árið 1973. Með því að flétta saman safnmyndefni og ímyndaðri dagbók á 16 mm filmu dregur þessi ljóðræna heimildarmynd upp mynd af hugsjónum Cabrals og fjallar um mannréttindi, ást, stríð og svik.

AMILCAR
Two Times Joao Liberada

Two Times João Liberada // Duas vezes João Liberada

Leikstjóri: Paula Tomás Marques

Kvikmynd innan kvikmyndar: João fer með aðalhlutverkið í ævisögulegri kvikmynd um Liberödu, kynsegin manneskju sem varð fyrir ofsóknum rannsóknarréttar kirkjunnar. Þegar leikstjórinn lamast með dularfullum hætti sækja óhugnanlegir draumar á João, sem reynir á meðan að gefa sögu Liberödu góð skil.

Providence and the Guitar // A Providência e a Guitarra

Leikstjóri: João Nicolau

Ferðalistamennirnir Léon og Elvira Berthelini koma til Covarronca þar sem þeim er tekið með fjandskap og neyðast til að gista undir berum himni ásamt útskrifuðum námsmanni frá Cambridge. Eftir að hafa fengið skjól hjá málara sýna þau hvernig list og ást geta umbreytt hvor annarri.

PROVIDENCE AND THE GUITAR
I ONLY REST IN THE STORM

I Only Rest In The Storm // O Riso e a Faca

Leikstjóri: Pedro Pinho

Í Gíneu-Bissá flækist umhverfis verkfræðingurinn Sérgio í náið samband við Diöru og Gui. Þegar nýlenduarfleifðin og samfélag útlendinganna taka að liðast í sundur verða brothætt tengsl þeirra hans síðasta skjól gegn einangrun

Them, Fado Bicha // As Fado Bicha

Leikstjóri: Justine Lemahieu

Heimildarmynd sem fylgir Lilu og João úr tvíeykinu Fado Bicha í gegnum nokkur ár. Með því að endurtúlka hina portúgölsku fado-hefð gefa þau sögum, baráttu og aktívisma hinsegin fólks kraftmikla rödd.

THEM FADO BICHA