Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)
48850419762 4ffdbaa05d o

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík – RIFF – hefur hlotið samstarfssamning frá Creative Europe MEDIA, sem er menningarsjóður Evrópusambandsins. Að auki hlaut RIFF 93 punkta af 100 mögulegum í ítarlegu mati MEDIA á umsókn og hefur aldrei hlotið hærri stigagjöf. Í ljósi þessa árangurs er RIFF veittur samningur til tveggja ára, um það bil 10 milljónir króna árlega. 

Ein fárra samstarfshátíða á Norðurlöndum

MEDIA hefur áður veitt RIFF samstarfssamning fyrir starfsemi og rekstur  kvikmyndahátíðarinnar, en samningurinn fæst aðeins að ítarlegri rýni lokinni þar sem allir þættir starfseminnar – dagskrá, áherslur, hæfi starfsfólks, fjárreiður, fjármálsstjórn og rekstrarform þar á meðal – eru skoðuð í þaula. Hér er því um athyglisverðan árangur að ræða þar sem fáar hátíðir á Norðurlöndum hljóta slíkan stuðning frá MEDIA og engin á Íslandi önnur en RIFF hefur hlotnast þessi heiður.

Sérfræðingar í málefnum kvikmyndahátíða

Það sem gerir tilkynninguna um samstarfið ennþá ánægjulegri er hin geysiháa einkunn sem starfsemi RIFF fær að lokinni ítarlegri athugun Creative Europe MEDIA. 93 stig af 100 er fáheyrð einkunn, gefin af fulltrúum MEDIA sem eru sérfræðingar í málefnum kvikmyndahátíða og þekkja þá starfsemi í þaula. 

Mikil viðurkenning á starfi RIFF

„Þetta eru ekki aðeins stórkostlegar fréttir fyrir okkur heldur gífurlega mikil viðurkenning á því starfi sem unnið er hjá RIFF,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF af þessu tilefni. „Við höfum áður hlotið stuðning til starfseminnar frá MEDIA en aldrei uppskorið jafn háa einkunn í matinu sem er til grundvallar hvort af samstarfinu verður. Þetta er í línu við það sem fulltrúar MEDIA hafa sagt þegar þeir hafa komið á hátíðina, en þeir undrast jafnan hvernig hægt er að halda jafn faglegan og metnaðarfullan viðburð á þessu litla og afskekkta landi.“

Tíu í einkunn fyrir faglegt starf, fjölbreytileika og sjálfbærni

Í umsögn sjóðsins kemur fram að RIFF er talin vera afar virtur og mikilvægur menningarlegur viðburður. Hátíðin fær 9 af 10 punktum mögulegum fyrir að öfluga starfsemi allt árið svo sem með kvikmyndasýningum og námskeiðum um allt land sem m.a. eru tileinkuð börnum og unglingum og fyrir hugmyndaauðgi er varðar nýstárlega sérviðburði á sviði kvikmynda sem laða að nýja áhorfendur. Fyrir sjálfbærni og umhverfismál fær hátíðin fullt hús stiga eða 10 í einkunn sem og fyrir að huga vel að fjölbreytileika, aðgengi fyrir alla, og að jafnréttismálum en hátíðin hefur alla tíð kynnt jafnt kvikmyndir eftir kven- og karlleikstjóra. Þess utan hrósar MEDIA sérstaklega og gefur 10 í einkunn fyrir skýra verkaskiptingu, framúrskarandi verkefnastjórnun og fjölbreytt úrval fagfólks er starfar við hátíðina. Hátíðin, að mati MEDIA, rekur bransaviðburði í hæsta gæðaflokki og sýnir afbragðs kvikmyndir frá fjölmörgum löndum Evrópu en fyrir þann hluta fær RIFF líka 10 í einkunn. Hátíðin fær einnig tíu fyrir frumlegar leiðir í markaðssetningu m.a. á samfélagsmiðlum og að laða að ungt fólk. Þá er sérstaklega minnst á traust og gott samstarf hátíðar við fjöldann allan af erlendum stofnunum, fyrirtækjum á þessu sviði kvikmyndagerðar og árangursríku og virku samstarfi við virtar kvikmyndahátíðir í Evrópu sem styrki stöðu hátíðarinnar mikið.

Skýr sýn frá fyrsta degi

Hrönn bætir því við að RIFF hafi frá upphafi haft skýra sýn á starfsemina og það hafi snemma skilað sér í áhuga erlendis frá. „Við höfum lagt megináherslu á að sýna framúrskarandi vandaðar myndir sem annars myndu ekki skila sér hingað til lands; við höfum beint sjónum okkar að ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki meðal annars með keppnisflokknum Vitranir þar sem aðeins fyrsta eða önnur mynd leikstjóra er gjaldgeng; og loks höfum við lagt áherslu á að bjóða erlendum gestum til Íslands til að kynnast því sem vel er gert í íslenskri kvikmyndagerð og koma á leið á samtali milli innlendra og erlendra fagaðila í kvikmyndagerð.“

Öflugir samstarfsaðilar skipta sköpum

Hún bendir ennfremur á að RIFF sé óhagnaðardrifinn viðburður og því skipti öllu að hátíðin hafi stuðning öflugra samstarfsaðila. „Við höfum verið svo lánsöm að fá til liðs við okkur sterka bakhjarla á undanförnum árum, og nefni þar sérstaklega fjárfestingafélagið AZTIQ og Iceland Hotel Collection by Berjaya. „Samstarfið sem hátíðin hefur tryggt sér gegnum sitt góða orðspor hefur gert okkur kleift að halda starfinu áfram af sama metnaði og fagmennsku og við höfum lagt áherslu á frá upphafi. Við erum í skýjunum með okkar frábæru samstarfsaðila og höldum áfram að bjóða upp á kvikmyndahátíð sem er Reykjavík og Íslandi til sóma, og íslenskri kvikmyndagerð til framdráttar.“

Frábært veganesti inn í RIFF 2025

Þessar fréttir eru að sögn Hrannar besta mögulega veganestið inn í væntanlega hátíð en undirbúningur fyrir hana er á lokametrunum. „Þessi viðurkenning gefur okkur mikinn byr undir báða vængi og ég get með sanni sagt að dagskrá RIFF hefur sjaldan verið jafn glæsileg og í ár. Úrval kvikmynda er einstaklega spennandi að þessu sinni, að ógleymdum heiðursgestunum sem væntanlegir eru. Við munum kynna dagskrá RIFF 2025 í heild sinni á næstu dögum og hlökkum mikið til,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF að lokum.

RIFF fer fram dagana 25.september til 5. október í  hinu sögufræga Háskólabíói þar sem sýningarstjórnun er fyrsta flokks og nóg pláss er fyrir alla, eins og fram kemur í umsögn Creative Europe MEDIA.