Splunkuný meistarastykki Thomas Vinterberg og Magnus Von Horn meðal mynda í flokknum Fyrir opnu hafi á RIFF

Kvikmyndirnar í flokknum Fyrir opnu hafi eru meistaraverk sem hafa vakið athygli, verið tilnefndar og unnið til verðlauna á stærstu kvikmyndahátíðum Evrópu, margar þeirra eru einnig sýndar á stóru hausthátíðunum í Feneyjum og Toronto.

Í ár hefur þessi flokkur líklega aldrei verið eins spennandi, gamanmyndir í bland við drama. Hvert meistarastykkið á fætur öðru, spunkunýjar myndir og meðal leikstjóra eru Thomas Vinterberg, Magnus Von Horn, Amanda Kernell og Chloe Zhao.

Í flokknum í ár er að finna kvikmyndir er snerta á öllum hliðum mannlífsins m.a. mynd er segir frá tilraun lífsþreyttra félaga við að auka lífshamingjuna með hóflegri, daglegri drykkju, forræðisbaráttu móður fyrir börnum sínum, grátbroslegri leit að ást og skuggahliðum samfélagsmiðla.

Sviti/Sweat (Cannes)

Leikstjóri: Magnus von Horn
Nýjasta myndin úr smiðju sænska leikstjórans Magnus von Horn. Mynd hans The Here After keppti í Vitranaflokki RIFF árið 2015 og hefur verið sýnd á fjölda kvikmyndahátíða og seld til til ótal landa. Myndin gefur innsýn í líf áhrifavaldsins Sylwia Zajac sem hefur öðlast mikla frægð og frama á samfélagsmiðlum en er þó í raun ein í heiminum.

Einn í viðbót / Another Round (Cannes)

Leikstjóri: Thomas Vinterberg
Nýjasta kvikmynd hins þekkta leikstjóra Thomas Vinterberg sem var frumsýnd í Cannes og var frumsýnd í Toronto í vikunni með RIFFARANUM Mads Mikkelsen í aðalhlutverki. Nokkrir lífsþreyttir kennarar? ákveða að sannreyna þá kenningu að það bæti lífið og auki sköpunargáfuna að vera alltaf svolítið í því. Tilraunin byrjar ágætlega en fljótlega fer að halla undan fæti.

Hirðingjaland/Nomadland (Venice Film Festival)

Leikstjóri: Chloé Zhao
Kvikmynd sem skartar stórleikkonunni Frances McDormand í leikstjórn Chloé Zhao. Myndin var frumsýnd samtímis á kvikmyndahátíðunumí Feneyejum og Torontó. Zhao er leikstjóri væntanlegu Marvelmyndarinnar Eternals sem áætlað er að komi út árið 2021 á vegum Walt Disney Studios. Hér segir frá konu á sjötugsaldri sem hefur misst allt sitt í fjármálakreppunni og heldur í ferðalag um ameríska vestrið þar sem hún dregur fram lífið í sendiferðarbíl sem nútímahirðingi.

Dvalarstaður/Charter (Sundance)

Leikstjóri: Amanda Kernell
Gagnrýnendur hafa kallað þessa mynd eina bestu mynd ársins en hún var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni fyrr á árinu. Áhrifarík kvikmynd Amöndu Kernell um móðurástina sem á sér engin takmörk og fylgir engum lögum. Eitt aðalhllutverka er í höndum Sverris Guðnasonar en fyrsta kvikmynd Amöndu í fullri lengd hlaut Europa Cinemas Label verðlaunin sem besta evrópska kvikmyndin árið 2016. Mynd Amöndu Sami Blod var sýnd á RIFF í fyrra.

Við erum hér/Here we are

Leikstjóri: Nir Bergman
Mynd sem frumsýnd var á Cannes kvikmyndahátíðinni í leikstjórn Nir Bergman. Hér segir af Aharon sem hefur helgað líf sitt því að ala um einhverfan son sinn Uri. Líf þeirra er í þægilegri rútínu en komið er að því að Uri flytji að heiman og fari að lifa eigin lífi. Nú er spurning hvorum reynist það erfiðara í raun, föður eða syni?

Köttur í veggnum/Cat in the Wall

Leikstjórar: Mina Mileva, Vesela Kazakova
Köttur í veggnum var frumsýnd á Locarno hátíðinni í Sviss og er í leikstjórn Vesela Kazakova og Mina Mileva. Þær Mini og Vensela hafa ollið nokkru fjaðrafoki í heimalandi sínu Búlgaríu með heimildarmyndum sem komið hafa illa við kauninn á háttsettum mönnum þar í landi. Enda fjalla þær um valdatafl og skuggalega fortíð nafntogaðra stjórnmálamanna. Gekk einn búlgarskur þingmaður svo langt að kalla þær djöfullega dúóið. Inntakið í þessari mynd er öllu lágstemmdara en hér segir frá búlgaskri fjölskyldu í S-Austur London sem lendir í miklum erjum við nágranna sína vegna villikattar sem þau taka upp á arma sína. Skáldaður farsi með alvarlegum undirtón.

Við stjórnvölinn/A L’abordage

Leikstjóri: Guillaume Brac
Gamanmynd úr smiðju leikstjórans Guillaume Brac. Myndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín í vetur þar sem hún hlaut FIPRESCI verðlaun alþjóðlegra samtaka kvikmyndagagnrýnenda. Hér segir af Félix sem ákveður að elta sálufélaga sinn yfir þvert Frakkland en í kjölfarið fer af stað grátbrosleg atburðarás þar sem margt úr fer skorðum. Sprenghlægileg mynd um samskipti og ástir unga fólksins.

Fröken Marx/Miss Marx

Leikstjóri: Susanna Nicchiarelli
Kvikmynd í leikstjórn Súsönnu Nicchiarelli sem er meðal þeirra kvikmynda er keppa til aðalverðlauna Kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, Gullna Ljónið. Hér segir af hinni frjálslegu og ástríðufullu Eleanor Marx, yngstu dóttur Karl Marx, sem var í hópi þeirra forystukvenna sem fyrst leiddu saman feminisma og sósíalisma og barðist fyrir auknum réttindum kvenna og verkafólks.

Myndir á RIFF verða sýndar í Bíó Paradís, Norræna Húsinu og á netinu í gegnum www.riff.is. Hátíðin verður sett þann 24. september næstkomandi og hefst miðasala í næstu viku.

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email