
Bókabíó: Hroki og hleypidómar
Háskólabíó
28. september, kl 19:30 (7:30pm)
Bókabíómynd RIFF í ár er Pride and Prejudice, sem fór sigurför um heiminn þegar hún var frumsýnd árið 2005 og nýtur enn mikilla vinsælda. Líkt og skáldsagan sem hún er byggð á hefur kvikmyndin, í leikstjórn Joe Wright, öðlast sess sem tímalaus klassík. Kvikmyndin hlaut fjórar Óskarstilnefningar, þar á meðal Keira Knightley fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Elizabeth Bennet.
Sýningin er haldin í samstarfi við Aðdáendaklúbb Jane Austen á Íslandi og Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur og formaður klúbbsins, segir frá Jane Austen: Hvernig stendur á því að verk hennar höfða til fólks enn í dag? Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og þýðandi Hroka og hleypidóma fjallar um verkið.
The Loneliest Man in Town + Q&A
Háskólabíó
28. september, kl 19:30 (7:30pm)
Leikstjórar myndarinnar taka þátt í Spurt og svarað.
Myndin fjallar um tónlistarmanninn Al Cook, sem býr einsamall í íbúð fullri af minningum, hljómplötum, bókum og öðrum munum sem fylgja löngu lífi. Þegar ákveðið er að rífa húsið horfist hann í augu við að heimurinn sem hann byggði líf sitt á er að hverfa. Myndin er fyrst og fremst ljóðræn persónusaga um einmanaleika, missi, minningar, tónlist og það að þurfa að sleppa takinu á fortíðinni.


La Belle Année + Q&A
Háskólabíó
28. september, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri: Angelica Ruffier
Leikstjóri myndarinnar tekur þátt í Spurt og svarað.
Þegar Angelica tæmir æskuheimili sitt í kjölfar andláts föður síns, sem hún hafði fjarlægst með árunum, rifjar hún upp heita og einmanalega ást sem hún bar á unglingsárum til sögukennarans síns, sem hún kallar „Ungfrú B“. Og á meðan verkefnalistinn virðist aldrei ætla að styttast vex með henni sú sterka löngun að hitta hana á ný.
Congo Boy
Háskólabíó
28. september, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri: Rafiki Fariala
Bangui, Mið-Afríkulýðveldinu. Hinn 17 ára Robert dreymir um að eiga sér framtíð í tónlistarheiminum, en borgarastyrjöld hefur sett landið á annan endann. Þegar báðir foreldrar hans eru fangelsaðir þarf hann að sjá einn um fjögur yngri systkini sín. Hann reynir að láta daglegt líf ganga upp, sinnir ýmsum tilfallandi störfum, undirbýr sig fyrir skólapróf og kemur fram á tónleikum – staðráðinn í að láta drauminn rætast.


Beloved
Háskólabíó
28. september, kl 21:40 (9:40pm)
Leikstjóri: Erik Poppe
Asle og Gerd finna hamingjuna sem fjölskylda ásamt syni sínum í litlu sjávarþorpi. Þegar fram líða stundir eykst fjarvera sjómannsins Asle og einvera Gerd með drenginn. Hversu mikla fjarlægð þolir ástríkt samband áður en strengurinn slitnar?
Providence and the Guitar
Háskólabíó
28. september, kl 19:30 (7:30pm)
Leikstjóri: João Nicolau
Endur fyrir löngu flakka farandlistamennirnir Léon og Elvira Berthelini milli bæja til að hafa í sig og á. Þau mæta margvíslegum áskorunum og misjafnlega vingjarnlegu heimafólki, en málin vandast fyrst þegar óvænt bölvun sendir þau fram tímann til 21. aldarinnar þar sem framtíð tiltekinnar rokksveitar – og um leið samfélagsins alls – er undir.


Eternal Flame
Háskólabíó
28. september, kl 19:00 (7:00pm)
Leikstjóri: Pedro Ramalhete
João og Clara gengu saman í kvikmyndaskóla en hefur síðan vegnað misjafnlega; hann er atvinnulaus en hún starfar sem aðstoðarmaður framleiðanda. Dag einn hittast þau fyrir tilviljun og þá býður Clara honum að taka þátt í mynd sem hún vinnur að. Þessi tregablandna gamanmynd er óður til portúgalskrar kvikmyndagerðar og kvikmynda almennt.
Films from the North
Háskólabíó
28. september, kl. 21:00 (9:00pm)
Sem fyrr gerir RIFF stuttmyndum hátt undir höfði með veglegri dagskrá af stuttmyndum hvaðanæva að í heiminum. Í stuttmyndum gilda fáar reglur, forminu er oftar en ekki umbylt og alls kyns innblástur lætur á sér kræla.


Tristan Forever
Háskólabíó
28. september, kl 13:10 (1:10pm)
Leikstjórar: Tobias Nölle, Loran Bonnardot
Í þrjá áratugi hefur læknir í París átt í vináttu við sjómann sem býr á afskekktustu byggðu eyju heims; Tristan da Cunha í Suður-Atlantshafi. Nú snýr hann þangað aftur, í þetta sinn með það fyrir augum að setjast þar að til frambúðar.
NoJSE Shorts + Q&A
Norræna húsið
28. september, kl. 13:00 (1:00pm)
RIFF í samvinnu við NoJSE býður upp á sérstakt úrval vandaðra stuttmynda frá Norðurlöndunum. NoJSE er samstarf fimm barnakvikmyndahátíða á Norðurlöndunum; Buster í Kaupmannahöfn, BUFF í Malmö, Alþjóðlegu barnakvikmyndahátíðinni í Kristiansand, Alþjóðlega barnamyndahátíðin í Oulu og UngRIFF í Reykjavík.
Markmið samstarfsins er að koma á framfæri vönduðum stuttmyndum til barna og ungmenna, ásamt því að auka aðgengi kvikmyndagerðarfólks sem framleiðir myndir fyrir þennan aldurshóp að norrænum kvikmyndum. Í ár tilkynnum við með stolti að íslenska stuttmyndin Í TAKT eftir Hönnu Huld er hluti af þessari frábæru dagskrá.
Myndirnar ásamt kennsluefni eru einnig aðgengilegar á kennsluvefnum Norden í skólan.


Fallax VR Screening
Háskólabíó – Litla sviðið
28. september, kl 17:30 (5:30pm)
Leikstjóri: Owen Hindley
Upplifðu Fallax, fyrstu íslensku sýndarveruleika kvikmyndina, eftir leikstjórann Owen Hindley og skapandi stúdíóið Huldufugl, í Háskólabíói.
Sérstakir XR-stólar og búnaður frá SagaVR leyfa áhorfendum að sökkva inn í sýndarheim myndarinnar.
Myndin verður sýnd í XR stólum tvisvar á hálftíma fresti.
Viðburðurinn hentar ekki fyrir yngri en 12 ára.
Fangi flýr út í íslensku náttúruna. Vinir fangans hverfa á undarlegan hátt og fanginn dregst inn í heim þar sem tíminn tifar öðruvísi og náttúran tekur á sig mannsmynd. Kvikuð mynd þar sem karakterar og náttúruöfl eru túlkuð af loftfimleikurum. Fallax er fyrsta íslenska myndin sem er gerð innan sýndarveruleika.




