Afhending heiðursverðlauna Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fór fram á Bessastöðum síðdegis í gær, að viðstöddum boðsgestum. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti hollenska leikstjóranum og ljósmyndaranum Anton Corbijn heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi og hafði á orði við það tækifæri hve mikið dálæti hún hefði á myndum hans af einni af uppáhaldshljómsveitum hennar, U2, en Corbijn hefur átt farsælt samstarf með írsku hljómsveitinni í meira en 40 ár.
Gul viðvörun til að glæða innblásturinn
Þá bætti hún við að krefjandi aðstæður kölluðu jafnan fram sköpunarkraft hjá fólki sem á annað borð byggi yfir listrænni taug. Það væri líkast til ástæða þess að óvenju margt listrænt og skapandi fólk kæmi frá Íslandi. Hún hefði hnippt í Móður náttúru í tilefni og pantað hressandi veður til að blása honum enn frekari innblástur í brjóst, en gul veðurviðvörun var í gildi í gær með tilheyrandi úrkomu og hvassviðri.
Auðveld færsla milli miðla
Fyrir afhendinguna flutti Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, stutta tölu um Corbijn. Sigurjón nefndi sérstaklega hve aðdáunarvert honum þætti að í veröld sem vill helst binda fólk á einn afmarkaðan bás til að skilja við hvað það fæst–þ.e. afþreyingariðnaðurinn vestanhafs–hafi Corbijn áreynslulaust fært sig milli miðla og staðið vörð um sína sérstöku sýn um leið og hann skapaði listaverk sem standast munu tímans tönn, hvort sem viðfangsefnið var ljósmynd, tónlistarmyndband eða kvikmynd í fullri lengd. Það væri fráleitt öllum gefið að gefa sig að mismunandi miðlum án þess að glata trúverðugleikanum.
Margmiðla spjall með meistaranum
Að lokinni athöfn spjölluðu viðstaddir um stund í hátíðarsal Bessastaða, en að því búnu hélt Corbijn til Háskólabíós. Þar tók hann þátt í margmiðla meistaraspjalli, með vísan til þess að þar fór heiðursverðlaunahafinn yfir feril sinn á sviði ljósmyndunar, tónlistarmyndbanda og bíómynda, um leið og myndum sem svöruðu til framvindunnar var varpað upp á tjaldið í þétt setnum sal 1 í Háskólabíó. Að endingu bauðst áhorfendum að beina spurningum til meistarans, áður en spjalli hans lauk. Corbijn hélt svo af landi brott í morgun eftir viðburðaríka og annasama daga sem heiðursgestur RIFF.
