Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

Kvikmyndir eru oftar en ekki veisla fyrir augu og eyru, en Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður árlega til bíóveislu við svo úr verður upplifun fyrir öll skynfærin. Sérviðburðir RIFF þar sem hátíðin fær einhvern af betri veitingastöðum borgarinnar í samstarf við bíósýningar eru iðulega feikivel sóttir enda ógleymanleg upplifun og ómissandi fyrir sanna sælkera sem kunna að meta gott bíó. Í ár verður annars vegar boðið upp á Sjónræna matarveislu og hins vegar Smakkbíó.

News on the website Culinary Screenings at RIFF 2025 1
Special events FB 3

Sjónræn matarveisla: Plantan Bistro og Big Night

Big Night (1996) er alkunn sælkeramynd þar sem ítalskar krásir eru í einu af aðalhlutverkum. Leikararnir Stanley Tucci, sá rómaði sælkeri, og Campbell Scott sjá saman um leikstjórn og fara báðir með hlutverk í myndinni ásamt Tony Shaloub, Ian Holm, Isabellu Rossellini, Minnie Driver og Liev Schreiber.

Allt lagt undir fyrir eitt kvöld Í myndinni kynnumst við bræðrunum Primo og Secondo sem reka veitingastað í New Jersey með áherslu á ekta krásir frá gamla heimalandinu, Ítalíu. Reksturinn er aftur á móti í járnum og þeir bræður ákveða að leggja allt undir með því að skipuleggja veglega veislu til heiðurs djassgoðsögninni Louis Prima, í von um að viðvera hans muni bjarga veitingastaðnum. Spennan magnast í eldhúsinu eftir því sem nær dregur stóra kvöldinu og fleira en pastað nálgast suðumark!

Plantan Bistró er samstarfsaðili í þessum lystaukandi sérviðburði og mun galdra fram dáleiðandi matseðil fyrir viðstadda með kræsingum sem allar eru innblásnar af matnum í myndinni. Plantan er til húsa í Norræna húsinu í Vatnsmýrinni og býður upp á lítinn árstíðarbundinn matseðil þar sem áhersla er lögð á heilnæman og góðan mat. Allt á boðstólum er plöntumiðað og sköpunargleði og breytileiki árstíða fær að njóta sín.

Persónuleg veisla og notaleg

„Big Night er mynd um vináttu, ástríðu fyrir matargerð og heljarmikla sælkeraveislu,” segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir, meðeigandi og matreiðslumeistari á Plöntunni. „Ég held að þetta sé frábær mynd fyrir matartengda kvikmyndasýningu, af því að í henni er veislan með fjölskylduyfirbragði þar sem langborð svignar undan krásum og allir fá sér af, og það gerir veisluna ennþá persónulegri og notalegri, og færir matargestina nær hvert öðru.

Smakkbíó: Ramen Momo og Tampopo (Að eilífu, ramen)

Sumar kvikmyndir ylja áhorfendum um hjartað á meðan sumir réttir megna að verma sál þeirra sem smakka. Hvers vegna ekki að blanda þessu tvennu saman í einstaka og ógleymanlega upplifun? Þannig er einmitt Smakkbíó RIFF og Ramen Momo rétt lýst.

Myndin sem sýnd verður á þessum sælkera-bíóviðburði er næsta goðsagnakennd kósýmynd, Tampopo frá 1985. Myndinni hefur verið lýst sem fyrsta japanska núðlu-vestranum og er hún í senn þekkt fyrir að vera einfaldlega röð kostulegra uppákoma, en líka fyrir að keyra upp óslökkvandi löngun í ilmandi og yljandi japanskan mat.

Special events FB 2

Dásamleg saga sem bragð er af

Tveir vörubílstjórar slysast inn á hrörlega vegasjoppu þar sem ekkjan Tampopo selur ramen núðlur.  Hún biður þá félaga í framhaldinu að hjálpa sér að gera sjoppuna að núðlusjoppu í fremstu röð. Úr verður dásamleg saga sem bragð er af og myndin er einfaldlega mannbætandi óður til gleðinnar sem góður matur veitir.
Samstarfsaðili RIFF í smakkbíóinu í ár er Ramen Momo við Tryggvagötu, sem opnaði árið 2014 af ramen-kokkinum og frumkvöðlinum Kunsang Tsering og eiginkonu hans, Ernu Pétursdóttur. Enn í dag er Ramen Momo eina ramen-gerðin á Íslandi og jafnframt fyrsti núðlubarinn á landinu til að framleiða lífrænar fersknúðlur frá grunni.

Ramen-sælkerar sameinist!

„Myndin Tampopo snýst um ástríðuna í matargerð, sér í lagi ramen-eldamennsku, og er ómissandi fyrir öll þau sem hafa gaman af matargerð og eru ástríðufull að eðlisfari, hvort sem það er fyrir mat eða öðru,” segir Romà Gomez Cortada, yfirkokkur á Ramen Momo. „Ég held að þessi sýning sé frábært tækifæri til að hitta aðra ramen-sælkera og eiga ógleymanlegt kvöld með ljúffengum mat og dásamlegri bíómynd. Ég á von á frábærri stemningu með sterkum tilfinningum, í takt við matinn og myndina!”

„Sérviðburðir RIFF eru af ýmsum toga en eiga það sameiginlegt að færa kvikmyndasýningar í nýstárlegt og skemmtilegt umhverfi,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. „Allir eru þeir mismunandi leiðir sem hátíðin fer til að færa töfra kvikmyndarinnar í nýtt umhverfi og höfða þannig til enn fleiri bíógesta, þó í grunninn sé kjarninn ávallt sá sami. Á RIFF segjum við sögur, leitumst við að vekja til umhugsunar og víkka sjóndeildarhring þeirra sem koma í bíó meðan á hátíð stendur.“

Big Night verður sýnd í Norræna húsinu 27.september nk. og Tampopo í Háskólabíó 28. september. Takmarkað magn miða verður í boði, en nánari upplýsingar um sýningartíma má finna á heimasíðu hátíðarinnar, riff.is, þar sem miðasala fer fram.