KVIKMYNDAFLOKKAR
VITRANIR
Í Vitrunum stíga á sviðið nýir kvikmyndagerðarmenn með sína fyrstu eða aðra mynd og keppa um æðstu viðurkenningu RIFF – Gullna lundann. Hér fá nýjar og djarfar raddir kvikmyndanna að heyrast; verk sem ögra hefðum, leika sér með formið og vísa veginn að framtíð sögunnar á hvíta tjaldinu. Frá óhefðbundnum frásagnaraðferðum til frumlegra efnistaka — Vitranir er vettvangurinn fyrir nýja og ferska listamenn.
Mohsen Makhmalbaf
Mohsen Makhmalbaf er lykilpersóna í íranskri kvikmyndagerð, hylltur fyrir djarfa frásagnarlist og þátt sinn í að móta hina alþjóðlega viðurkenndu írönsku nýbylgju. Makhmalbaf er sjálfmenntaður kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi stjórnmálaaktívisti, en ferill hans spannar fjóra áratugi, 20 kvikmyndir í fullri lengd og 30 bækur. Hann hefur verið heiðraður í Cannes, Feneyjum og Berlín, og stendur enn sem einn af mikilvægustu og hugrökkustu röddum samtímans í heimi kvikmyndanna.
Giona A. Nazzaro
Giona A. Nazzaro er listrænn stjórnandi Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss og hefur lengi starfað sem dagskrárstjóri og gangrýnandi. Hann hefur einnig komið að fjölmörgun öðrum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og skrifað bækur um bíó. Þar má nefna rannsóknir hans um kvikmyndagerð í Hong Kong.
Saga Garðarsdóttir
Saga Garðarsdóttir er leikkona, bráðfyndinn uppistandari og handritshöfundur. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands og hefur síðan komið fram bæði í sjónvarpi og í kvikmyndum og hlotið verðlaun fyrir handritskrif. Síðasta hlutverk hennar er hlutverk Önnu í kvikmynd Hlyns Pálmasonar Ástin sem eftir er.
- A Light That Never Goes Out
- Cactus Pears
- Solomamma
- Sorry, Baby
- Strange River
- Jörðin undir fótum okkar
- The Last Paradise on Earth
- The Shipwrecked Triptych
ÖNNUR FRAMTÍÐ
Önnur framtíð er vettvangur fyrir kvikmyndir sem ögra samtímanum og ímynda sér betri framtíð. Í þessum flokki koma saman öflugar myndir sem takast á við umhverfis- og mannúðarmál — sögur sem ekki aðeins vekja spurningar heldur ýta okkur í átt að lausnum. Því stundum getur ein kvikmynd breytt sýn áhorfandans og mótað veröld morgundagsins.
Jónas Margeir Ingólfsson
Jónas Margeir Ingólfsson er íslenskur höfundur, framleiðandi og lögfræðingur. Hann er stjórnandi framleiðslufyrirtækisins ACT4 og hefur einnig veitt lögfræðiráðgjöf við fjölmörg íslensk kvikmyndaverkefni. Nafn hans má finna á kreditlistum verkefna á borð við Reykjavík Fusion, Ráðherrann og Stellu Blómkvist.
Fiorella Moretti
Fiorella Morretti er forseti og meðstofnandi sölufyrirtækið Luxebox í París sem þekkt er fyrir einstaklega sterkan katalóg af myndum hvaðanæva að úr heiminum. Hún var fyrrum við störf hjá Mantarraya, einu af stærri framleiðslufyrirtækjum Suður-Ameríku og bíður því upp á djúpa þekkingu og reynslu á dreifingu og samneyti við merka kvikmyndagerðarmenn.
Pipaluk K. Jørgensen
Pipaluk Kreutzmann Jørgensen er verðlaunaleikstjóri frá Grænlandi, framleiðandi og höfundur. Hennar fyrsta mynd í fullri lengd, Anori (2018) var sú fyrsta í Grænlandi sem leikstýrð er af konu og var margverðlaunuð á hátíðum um allan heim. Hún var meðleikstjóri stuttmyndarinnar Ivalu sem tilnefnd var til Óskarsins og er stofnandi Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Nuuk.
- 5 Seasons of Revolution
- All That’s Left of You
- Flophouse America
- Hacking Hate
- Mr. Nobody Against Putin
- Teenage Life Interrupted
- The Blue Trail
- The Last Ambassador
FYRIR OPNU HAFI
Á hverju ári skera örfáar kvikmyndir sig úr á kvikmyndahátíðum heimsins — heillandi, djarfar og ógleymanlegar. Fyrir opnu hafi færir þessi eftirminnilegu verk til gesta RIFF og sýnir úrval bestu kvikmynda liðins árs. Hér mætast þaulreyndir leikstjórar og ferskar nýjar raddir — utan keppnisflokks, en aldrei utan sviðsljóssins.
- Magic Farm
- Sirât
- The Mastermind
- Queens of the Dead
- Eleanor the Great
- Father
- White Snail
- The Smashing Machine
- Two Seasons, Two Strangers
- The Wizard of the Kremlin
HEIMILDAMYNDIR
Heimildamyndir eru meira en frásögn — þær fræða, ögra og veita innblástur. Dagskrá heimildamynda hjá RIFF býður upp á ferska sýn og nýjan skilning á heiminum, með kvikmyndum sem kveikja forvitni og hvetja til innihaldsríkra samræðna. Frá óvæntum sjónarhornum til byltingarkenndra uppgötvana. Þetta eru myndir sem skilja eftir djúp spor, bæði hjá áhorfendum og í samfélaginu.
- 5 Seasons of Revolution
- Afternoons of Solitude
- Flophouse America
- Hacking Hate
- Kim Novak’s Vertigo
- Paul
- Put Your Soul on Your Hand and Walk
- Walls – Akinni Inuk
SVISS Í FÓKUS
Í sérstökum flokki kynnir RIFF úrval nýrra mynda sem gefa bíó- gestum Háskólabíós bragðið af því ferskasta sem er að koma frá bíólandinu Sviss þessi misserin.
- The Girl and the Spider
- The Sparrow in the Chimney
- The Strange Little Cat
- Hanami
- Late Shift
- Queens
- The Safe House
ÍSLAND Í SJÓNARRÖND
RIFF er vettvangur þar sem íslensk og alþjóðleg kvikmyndalist mætast. Ísland við sjónarrönd sýnir nýjar myndir með sterk tengsl við Ísland og flokkurinn veitir innsýn í einstaka frásagnarlist og skapandi sýn landsins.
Sjá allar myndir í fullri lengd
Dómnefnd – Íslenskar stuttmyndir
Lisa Hoen

Lisa Hoen er hátíðar- og dagskrárstjóri Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Tromsø. Með margra ára reynslu við miðlun og menningarstörf er Hoen einnig menntuð í heimsspeki og kom sér á kortið hóf sjálf að gefa út menningartímarit í Tromsø.
Hjördís Jóhannsdóttir

Hjördís Jóhannsdóttir er Íslenskur leikstjóri og handritshöfundur. Hún hefur skrifað og leikstýrt fjölda stuttmynda bæði á Íslandi og í Los Angeles sem hafa verið sýndar á lofsungnum hátíðum um allan heim. Hjördís er með MFA gráðu frá California Institute of Arts.
Francisco Dias

Francisco Dias er portúgalskur kvikmyndamaður og dagskrárstjóri bransaviðburða á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Curtas Vila do Conde. Hann situr einnig í valnefnd keppnismynda á hátíðinni og starfaði áður við sölu og dreifingu hjá Luxbox í París. Hann hefur sjálfur leikstýrt fjölmörgum stuttmyndum.
- Allir Hundar Vilja Deyja Einir
- Sama hvað, ég elska þig
- Hugfangi
- Absolution
- Á Milli Línanna
- Strangers in the Night
- Túbusjónvarpssaga
- Mamma kenndi mér að gefa
MYNDIR ÚR NORÐRI
Í þessum flokki sýnum við úrval kvikmynda og stuttmynda sem birta áhorfendum hinn margslungna og oft óhefðbundna veruleika þeirra sem búa á norðurhjara veraldar, og um leið hvernig umheimurinn birtist þeim sem fylgjast með af hjaranum. Samstarf við Tromsö kvikmyndahátíðina.
SJÖ SNIÐUGAR
Flokkurinn Sjö sniðugar eru afrakstur samstarfs sjö evrópskra kvikmyndahátíða. Hátíðirnar sem taka þátt í verkefninu eru Indie- Lisboa í Portúgal, Alþjóðlega kvikmynda-hátíðin í Þessalóníku í Grikklandi, New Horizons í Póllandi, Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Vilnius í Litháen, FILMADRID á Spáni, Alþjóðlega kvik- myndahátíðin í Transylvaníu í Rúmeníu, og svo RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík.
MEISTARAR OG HEIÐURSGESTIR
Kvikmyndalistin mótast af frumkvöðlum sem marka skil og endurskilgreina frásagnarformið. Meistarar og heiðursgestir er flokkur sem heiðrar þessa brautryðjendur — listamenn sem hafa skilið eftir sig djúp spor í kvikmyndaheiminum. Hér eru verk þeirra í aðalhlutverki, og fagnar um leið þeirri sköpunargleði og snilld sem heldur áfram að veita innblástur kynslóð eftir kynslóð.
- Apichatpong Weerasethakul: Meistaraspjall
- Memoria
- Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives
- Mysterious Object at Noon
MIÐNÆTURTRYLLAR
Þegar klukkan slær tólf, tekur adrenalínið völdin. Miðnæturtryllar er næturveisla RIFF fyrir unnendur hryllings — þar sem spennan magnast, skuggarnir verða dekkri og óvæntir atburðir leynast handan hvers horns. Frá sálrænum martröðum til trylltra og ógnvekjandi ævintýra — þessar myndir munu halda þér vakandi… og biðjandi um meira!
ALÞJÓÐLEGAR STUTTMYNDIR
Formið er knappt en sjónarhornið takmarkalaust. Þessar alþjóðlegu stuttmyndir sameina djarfa sköpun og fjölbreytt sjónarmið, opna glugga inn í nýjan veruleika og endurskilgreina möguleika kvikmyndalistarinnar.
Daniel Hadenius-Ebner

Daniel Hadenius-Ebner er austurrískur menningarjöfur og listrænn stjórnandi sem býr yfir 20 ára reynslu innan landslags stuttmyndagerðar. Sem meðstofnandi og stjórnandi stuttmyndakeppninnar í Vín til margra ára hefur hann sett mark sitt á þróun menningar, dreifingu og samstarf Evrópuþjóða í stuttmyndagerð.
Erlendur Sveinsson

Erlendur Sveinsson er margverðlaunaður kvikmyndagerðarmaður sem hefur sýnt myndir sínar á yfir 100 hátíðum um allan heim. Hann hlaut Fullbright styrk til kvikmyndanáms í Columbia háskólanum í New York og er sérstaklega þekktur fyrir tónlistarmyndbönd fyrir tónlistarfólk eins og Laufey og Of Monsters and Men.
Kahina Ben Amar

Kahina Ben Amar sat háttvirt námskeið í kvikmyndagerð við La Fémis í Frakklandi og er leikstjóri fleiri og fleiri stuttmynda. Hún hefur staðið fyrir námskeiðum í kvikmyndagerð fyrir börn og fullorðna og vinnur í dag að sinni fyrstu mynd í fullri lengd, en verkefnið hóst á meðan dvöl hennar stóð í kvikmyndaresidensíunni við France-Korea kvikmyndaakademíuna.
- How Are You?
- Koki, Ciao
- Archipelago of Earthen Bones – to Bunya
- In Retrospect
- Daria’s Night Flowers
- Another Other
- The Flowers Stand Silently, Witnessing
- Full Out
- Memory is an Animal, it Barks With Many Mouths
- Landscapes of Longing
- Merging Bodies
- The Mine
- Samba Infinite
- Common Pear
- Slet 1988
- Ramallah, Palestine, December 2018
- Goats!
- A Thousand Waves Away
- Perseidas
- I Believe the Portrait Saved Me
- Alișveriș
GULLNA EGGIÐ
Gullna eggið er vettvangur nýrra radda í kvikmyndagerð. Hér eru sýndar myndir efnilegra leikstjóra sem taka þátt í RIFF Talent Lab – úrval sem dregur fram ferska sýn, skapandi frásagnir og varpar ljósi á næstu kynslóð kvikmyndagerðarfólks sem er að stíga sín fyrstu spor.
Rúnar Guðbrandsson
Rúnar Guðbrandsson er leikari og leiklistarkennari með víðtæka reynslu bæði á skjánum og á sviði. Þá má nefna Djúpið, Svartur á leik, Vitjanir og IceGuys. Hann var fyrsti kennarinn við leiklistardeild LHÍ og deildarstjóri leikaradeildar við Kvikmyndaskóla Íslands.
Gunnar B. Guðmundsson
Gunnar Björn Guðmundsson er reynslumikill leikstjóri og handritshöfundur. Hann hefur leikstýr fjórum myndum í fullri lengd og skrifað og leikstýrt fjöldan allan af stuttmyndum, auglýsingum og sjónvaprsþáttum. Hann vann einnig við leikhúsin þar sem hann leikstýrði yfir fjörutíu sviðsverkum.
Ólöf Birna Torfadóttir
Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri tveggja kvikmynda og fleiri sjónvarpsþátta. Hún leikstýrði gamanmyndunum Top Tíu Möst og Hvernig á að vera klassa drusla, og er handritshöfundur þáttanna Skvíz sem sýndir voru í Sjónvarpi Símans. Hún vinnur nú að fleiri en einu sjónvarpsverkefnum sem fara af stað á næstu árum.
TRIANGLE DAGSKRÁ
TRIANGLE-DAGSKRÁIN er verkefni sem komið var á fót af Vienna Shorts og samanstendur af þremur kvikmyndadagskrám. Þær hverfast um eitt þema, og verða sýndar á þremur hátíðum: Vienna Shorts, Curtas Vila do Conde og RIFF. Útfærslan er afar fjölbreytileg frá einni til annarrar; allt frá sjónarhorni innflytjendafulltrúa sem reynir að brúa fjarlægðina frá heimili sínu með nánd á hvíta tjaldinu, yfir í Intimacy Emergency og skoðun á vináttu, tengslum og tilfinningalegri berskjöldun.
- Taller (Workshop)
- Private Collection
- Silent Conversations
- Have We Made It Across the Plain of Night
- Balconies
Intimacy Emergency (Vienna Shorts)
- Mesmerized – Monolink
- Please Say Something
- I Am Afraid to Forget Your Face
- Tapes – Tell Me Everything
- Back to Genoa City
We Will Never Be Alone (Curtas Vila do Conde)
SÓLVEIG ANSPACH – TILNEFNINGAR
Sólveig Anspach verðlaunin eru samstarfsverkefni Franska sendiráðsins, Alliance française í Reykjavík, RIFF, Reykjavíkurborgar, Sendiráðs Íslands í París, Alþjóðlegu stuttmyndahátíðarinnar í Clermont-Ferrand og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
OMVF TÓNLISTARMYNDBÖND
Þessi flokkur tónlistarmyndbanda markar fyrstu alþjóðlegu tónlistarmyndbandakep nina á Oulu Music Video Festival — elstu hátíð tónlistarmyndbanda í heimi. Sýnt í samstarfi við OMVF, hér gefst tækifæri til að kynnast nýrri kynslóð djarfra og skapandi norrænna leikstjóra.
TÓNLISTARMYNDIR
Þar sem tónlist og kvikmyndir mætast. Tónlistarmyndir kafa ofan í sögur tónlistarfólks, menningu þeirra og mótandi augnablik. Með heillandi heimildamyndum flytur þessi dagskrárliður áhorfendur um ólík tímabil, hljóma og senur — og fagnar taktinum sem knýr lífið áfram á hvíta tjaldinu.
SÉRVIÐBURÐIR
RIFF er meira en hefðbundin kvikmyndaupplifun. Á hverju ári bjóðum við upp á einstaka og ógleymanlega viðburði sem færa gestum hátíðarinnar upplifun í óvenjulegu umhverfi. Hvort sem það er íshellakvikmyndahús,
sundbíó, hraunhellakvikmyndasýningar eða kvikmyndir paraðar við matargerð — þá gera þessir sérviðburðir hverja hátíð ógleymanlega og einstaka.
- Búbblubíó: Pal Joey
- Hellabíó: The Descent
- Hellabíó: Hetjudáðir Múmínpabba
- Sjónræn matarveisla: Big Night
- Smakkbíó: Tampopo
MÍNÚTUMYNDIR
Alþjóðlegur vettvangur fyrir sköpun í sinni tærustu mynd. Mínútumyndir sýna einnar mínútu kvikmyndir hvaðanæva að úr heiminum og gefur þannig kröftuga innsýn í samtímann með hreyfimyndum. Ný sería kemur
út á tveggja mánaða fresti og varpar ljósi á fersk þemu og ólík sjónarhorn.
Viltu taka þátt? Sendu inn myndbandið þitt á theoneminutes.org og vertu hluti af samtalinu.
DÓMNEFND UNGA FÓLKSINS
RIFF einsetur sér að veita ungu fólki tækifæri til þess að láta rödd sína berast. Dómnefnd unga fólksins velur vinningshafa þvert á flokka RIFF og skipar þrjá kvikmyndagerðamenn og kvikmyndaunnendur með sérstaklega gott auga fyrir framúrskarandi kvikmyndalist.
Elín C. H. Ramette
Elín Ramette hefur unnið að yfir 30 stuttmyndum. Ferill hennar sveiflast á milli stórra framleiðslna og grasrótar menningar, með reynslu af alþjóðlegum kvikmyndahátíðum eins og Les Arcs og RIFF. Með samspil listrænnar sýnar og tæknilegrar sérfræðiþekkingar leggur hún áherslu á tilfinningu frekar en tæknina.
Brynjar Daðason
Brynjar Daðason (f.1999) er tónskáld, fjölhljóðfæraleikari og hljóðmaður. Ásamt því að hafa gefið út sína eigin tónlist hefur hann verið virkur í tilraunasenunni og unnið í tónlistardeildum fyrir kvikmyndir, bæði sem tónskáld og pródúser.
Ísak Hinriksson
Ísak Hinriksson er íslenskur kvikmyndagerðamaður sem hefur leikstýrt og unnið að gerð kvikmynda, sjónvarpsþátta, sviðlistaverka og tónlistamyndbanda. Stuttmyndin hans Sjoppa var frumsýnd á RIFF 2023 og síðar á Bamberg Stuttmyndahátíðinni. Um þessar mundir er hann með tvær heimildamyndir í bígerð og fleiri verkefni í þróun.

